NBA-deildin er búin að gefa út hvernig byrjunarliðin verða skipuð í Stjörnuleik deildarinnar sem verður í Houston sunnudaginn 17. febrúar. Aðdáendur deildarinnar velja byrjunarliðin og það kemur fáum á óvart að Kobe Bryant og LeBron James hafi fengið flest atkvæði. Kevin Garnett framherji Boston er í byrjunarliði austursins og verður þetta hans fimmtándi leikur.
Rajon Rondo er í fyrsta sinn í byrjunarliði í Stjörnuleiknum en Kobe Bryant er að spila sinn fimmtánda Stjörnuleik í röð, sem er met, og eru hann og Kevin Garnett í öðru sæti á eftir Kareem Abdul-Jabbar yfir flesta stjörnuleiki. En Kareem lék í 19 slíkum á sínum ferli.
Vestrið:
Chris Paul – L.A. Clippers
Kobe Bryant – L.A. Lakers
Kevin Durant – Oklahoma City Thunders
Blake Griffin – L.A. Clippers
Dwight Howard – L.A. Lakers
Austrið:
Rajon Rondo – Boston Celtics
Dwayne Wade – Miami Heat
LeBron James – Miami Heat
Carmelo Anthony – New York Knicks
Kevin Garnett – Boston Celtics




