HomeFréttirValur sterkari í jöfnum leik

Valur sterkari í jöfnum leik

Haukar tóku á móti Val í Schenkerhöllinni í kvöld í 18. umferð Dominosdeildar kvenna. Framundan var gríðarlega mikilvægt einvígi hjá þessum liðum þar sem að fyrr í dag hafði Val verið dæmdur 0-20 ósigur gegn Snæfelli eins og Karfan var búin að greina frá og því með sigri myndi Haukar ná að jafna Val að stigum og komast yfir þær á innbirgðis úrslitum. Valur lét hins vegar þessar leiðindar fréttir ekkert hafa áhrif á sig og sigruðu með fimm stigum, 61-66 og halda því þriðja sætinu í deildinni.
Tveir leikmenn voru svekkjandi nálægt þrefaldri tvennu í kvöld, Siarre Evans vantaði einungis tvær stoðsendingar og Guðbjörg Sverrisdóttir var bara þremur fráköstum frá henni.
 
Byrjunarlið Hauka: Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, María Lind Sigurðardóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Siarre Evans.
 
Byrjunarlið Vals: Guðbjörg Sverrisdóttir, Jaleesa Butler, Hallveig Jónsdóttir, Ragna Margrét Brynjarsdóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir.
 
Valur byrjaði vel og voru komnar í 0-6 eftir eina mínútu en þá tók við 7-2 kafli hjá Haukum. Valur spilaði pressuvörn allan leikinn og þó að Haukar létu það ekkert á sig fá, leystu hana vel og voru aldrei í erfiðleikum með að komast yfir miðju á átta sek., þá gekk sóknin frekar brösulega. Um miðjan leikhlutan kveiknaði aldeilis í Kristrúnu Sigurjónsdóttur og skoraði hún 7 stig í röð fyrir Val og kom þeim 10-17. Þá tók við 11-4 kafli hjá Haukum þar sem Gunnhildur Gunnarsdóttir fór mikinn og skoraði 5 stig og átti 1 stolinn bolta. Leikhlutinn endaði því 21-21.
 
Í öðrum leikhlutanum skiptu Haukar yfir í svæðisvörn og tókst vel til að stoppa Val þannig. Haukar voru reyndar einnig mjög heppnar því að þegar Valur náðu að leysa svæðið þá voru þær yfirleitt mjög opnar undir körfunni en boltinn rúllaði af hringum trekk í trekk. Annars var leikurinn mjög jafn, báðum liðum gekk illa að skora og var mikið um slæmar sendingar og tapaða bolta. Valur komst aftur yfir á mjög skemmtilegum 12 sek. kafla þar sem að Guðbjörg Sverrisdóttir smellti þrist, stal boltanum og átti svo stoðsendingu á Kristrúnu. Haukar komust þó aftur yfir og virtust ætla að fara í hálfleikinn yfir en Kristrún setti flottan þrist og staðan jöfn í hálfleik, 34-34.
 
Þriðji leikhlutinn var gríðarlega jafn. Valur var með smávægilega yfirhönd en voru aldrei meira en fjórum stigum yfir. Haukar komust svo yfir í stöðunni 49-46 þegar Siarre Evans smellti þrist niður og það dugði þeim til að leiða með einu stigi, 49-48 að lokum leikhlutans.
 
Haukar byrjuðu fjórða leikhlutann vel og komust fimm stigum yfir en rétt fyrir miðbik hans jafnaði Guðbjörg með mögnuðum þrist og við hann breyttist andrúmsloftið í höllinni og Valur náði yfirhöndinni. Haukar voru ekki langt undan en bæði Evans og Margrét Rósa misnotuðu 1 af 2 vítaskotum sínum á loka mínútu leiksins og reyndist það þeim afar dýrkeypt því þær höfðu getað jafnað leikinn en í stað leiddi Valur með tveimur stigum þegar 16 sek. voru eftir. Haukar urðu að brjóta og lofaði það góðu þar sem að Kristrún misnotaði fyrra vítaskotið og Haukar því aðeins þremur stigum undir og með boltann. En þá átti Margrét Rósa mislukkaði sendingu sem Kristrún náði og Haukar neyddust til þess að senda hana aftur á línuna þar sem hún setti bæði skotin sín og kláraði endanlega leikinn fyrir Val sem sigraði með 5 stigum, 61-66.
 
Stigahæstar hjá Haukum voru: Siarre Evans 19 stig/16 fráköst/8 stoðsendingar, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 19 stig/5 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 7 stig/4 fráköst/6 stolnir boltar.
 
Stigahæstar hjá Val voru: Kristrún Sigurjónsdóttir 25 stig/6 fráköst/5 stoðsendingar/4 stolnir boltar, Jaleesa Butler 15 stig/11 fráköst/4 varin skot, Guðbjörg Sverrisdóttir 13 stig/7 fráköst/10 stoðsendingar/4 stolnir boltar.
 
Leikmaður leiksins: Kristrún Sigurjónsdóttir
 
 
 
 
Umfjöllun/ K. Bergmann
 
Fréttir
- Auglýsing -