KR fengu Hauka í heimsókn í kvöld í DHL höllina í 20. umferð Dominosdeildar kvenna. KR leiddi allan leikinn og sigurinn aldrei í hættu. Þó að Haukum hafi tekist að minnka muninn niður í sex stig í upphafi fjórða leikhluta þá kláraði KR leikinn auðveldlega og sigruðu með 19 stigum, 73-54.
Með sigrinum í dag er KR komnar með aðra löppina inn í úrslitakeppnina eftir þrjá sigra á röð á meðan Haukar virðast vera að missa af lestinni eftir fjögur töp í röð.
Shannon McCallum var einum stolnum bolta frá þrefaldri tvennu og trölla tvenna Siarre Evans fellur algjörlega í skuggann á slæmri spilamennsku Hauka en hún var með 31 frákast í leiknum.
Byrjunarlið KR: Helga Einarsdóttir, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, Björg Guðrún Einarsdóttir, Sigrún Sjöfn Ámundardóttir og Shannon McCallum.
Byrjunarlið Hauka: Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, María Lind Sigurðardóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Siarre Evans.
Það verður hreinlega að segjast að það mætti aðeins ein manneskja til leiks í fyrri hálfleik og það var Shannon McCallum. Hún skoraði 16 af 23 stigum KR í fyrsta leikhlutanum, 9 af 11 stigum KR í öðrum leikhlutanum og skoraði allar nema tvær körfur liðsins í opnum leik í fyrri hálfleik. Ekkert gekk upp hjá Haukum, þær voru með 18% skotnýtingu og 8 tapaða bolta í fyrsta leikhlutanum og fylgdu því eftir með 20% skotnýtingu og 6 töpuðum boltum í seinni leikhlutanum. Vægast sagt skelfilegur körfubolti hjá báðum liðum að frátalinni McCallum.
KR skoraði fyrstu stig leiksins og voru komnar í 12-2 eftir rúmlega fimm mínútna leik. Þá skoruðu Haukar fimm stig í röð og minnkuðu muninn niður í fimm stig, 12-7. Eftir það yfirspilaði KR Hauka 11-3 og leiddi því leikinn 23-10 að loknum fyrsta leikhluta.
Mikið jafnræði var á milli beggja liða í öðrum leikhluta þar sem ekkert gekk upp á hvorugu liði og endaði hann 11-11.
Haukar leyfðu KR að komast 44-27 yfir á fyrstu fimm mínútum þriðja leikhluta áður en þær fóru að spila körfubolta en þá loksins kom góður kafli hjá þeim þar sem að þær skelltu í lás í vörninni og KR gerðu ekkert annað en að senda Hauka á línuna. Haukar yfirspiluðu KR 12-3 það sem eftir var af leikhlutanum og þar af komu 10 stig af vítalínunni. Á þessum tímapunkti virtist McCallum vera búin að sprengja sig því hún skoraði aðeins 1 stig í leikhlutanum og það kom á fyrstu mínútunni.
Með McCallum óvirka tókst Haukum að ganga á lagið og minnka muninn niður í 6 stig í stöðunni 54-48 og með sjö mínútur eftir af leiknum virtust Haukar loksins vera komnir í takt við leikinn. En þá misstu Haukar Helgu Einarsdóttir þrívegis lausa inn í teig ásamt Sigrún Sjöfn Ámundadóttir einu sinni og voru það 8 dýr stig á einni og hálfri mínútu. Ásamt þessu einbeitingarleysi í vörninni þá hætti allt að ganga í sókninni og þær misnotuðu 20 af næstu 23 skotum sínum. Þá ísaði McCallum leikinn algjörlega með því að dúndra niður tveimur þristum og þremur af fjórum vítaskotum. Því öruggur 73-54 sigur fyrir KR.
Stigahæstar hjá KR voru: Shannon McCallum 38 stig/14 fráköst/9 stolnir boltar, Helga Einarsdóttir 15 stig/7 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 14 stig/9 fráköst/5 stoðsendingar.
Stigahæstar hjá Haukum voru: Siarre Evans 20 stig/31 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 12 stig/9 fráköst, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 11 stig/5 fráköst.
Leikmaður leiksins: Shannon McCallum
Mynd/ [email protected] – Shannon McCallum var allt í öllu hjá KR í fyrri hálfleik
Umfjöllun/ K. Bergmann




