Greg „Pop“ Popovich, þjálfari San Antonio Spurs, er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum og nú í viðtali við miðilinn basketball.realgm.com lofaði hann evrópska leikmenn í hástert.
Popovich er fæddur í gróðrarstíu amerísks körfubolta, Indiana, og á serbneskan föður og króatíska móður. Ást hans á boltanum er af þeim völdum nánast óhjákvæmilegur. Bakgrunnur hans er þó ekki sama sem merki um að hann fengi ást á leiknum, yrði einn af virtari þjálfurum körfuboltans í heiminum, ynni NBA titla með San Antonio og tryggja sér nú þegar stað í musteri amerísks körfubolta.
Það er nú einu sinni þannig að þegar „Pop“ talar þá hlustar heimurinn og það nýjasta frá honum var þegar hann tjáði sig um körfubolta utan Bandaríkjanna og þá sérstaklega í Evrópu.
„Evrópskir leikmenn kenndu okkur mikið í langan tíma. Ég held að bilið á milli sé að minnka en tæknilega séð þá eru Evrópubúar langt á undan“, sagði Popovich og bætti við: „Skottækni, sendingatækni, boltafærni, hreyfanleiki án bolta og liðs spilamennska voru allt hlutir þar sem þeir voru skrefinu á undan og það sást best á okkar yngri leikmönnum.“
„Ég vil meina að það hafi gefið okkar leik mikið að fá leikmenn og þjálfara utan Bandaríkjanna til okkar og geta séð hvað þeir hafa gert“, sagði hann en það er ljóst að virðingin er ekki bara takmörkuð við leikmenn frá Evrópu.
„Það eru einfaldlega þjálfarar utan landsteinanna sem er jafn góðir ef ekki betri en þjálfararnir hérna.“
Sama dag og þetta viðtal var tekið við hafði Popovich sagt um Tony Parker að hann væri kominn út fyrir „Stjörnu“ level svo góður væri hann.
Fyrir utan Parker eru nokkrir erlendir leikmenn í herbúðum Popovich. Frönsku landsliðsmennirnir Boris Diaw og Nando de Colo spila með liðinu svo ekki sé minnst á Manu Ginobili og Tiago Splitter.
Fleiri flottir spilarar má finna í NBA deildinni s.s. Dirk Nowitzki, Nikola Pekovic, Ricky Rubio og rússneska dúóið Alexey Shved og Andrei Kirilenko.
Aðspurður hvort að Ricky Rubio gæti aðlagast deildinni sagði Pop. „Þessir gæjar ferðast um heiminn og eru mun menningarlegri en við. Allir láta eins og Bandaríkjamenn séu þeir sem séu svo menningarlegir, við erum svo hrokafullir“ sagði hann og lét svo spurninga syrpu rigna yfir spyrilinn.
„Eins og við séum menningarrisarnir, eruð þið að grínast? Hefurðu horft á sjónvarp nýlega og séð hvað Bandaríkjamenn gera? Hvað talarðu mörg tungumál? Svo velturðu fyrir þér hvort að þessir leikmenn munu aðlagast? Ég hreinlega vona að þeir sleppi því og haldi í sína eigin menningu.“
Árið 2010 hrærði Popovich allverulega upp í hlutunum, ekki í fyrsta skiptið, þegar hann sýndi mótstöðu við að NBA deildin notaði orðið „Heimsmeistarar“ yfir liðin sem ynnu NBA titilinn.
„Það er bara ekki viðeigandi. Ég tel spænska landsliðið eiga þennan titil, Bandaríkin eru Ólympíumeistarar og Lakers eru NBA meistarar. Það er bara ekki eðlilegt að eitthvað NBA lið geti kallað sig heimsmeistara því ég man ekki til þess að liðin hafi spilað við önnur lið utan landamæra Bandaríkjanna til að eigna sér þennan titil. Ekki satt? Þetta er stór heimur þarna úti“, sagði meistari Greg Popovich að lokum í þessu skemmtilega spjalli.
Mynd/ espn




