Stórveldin Lakers og Boston mættust í Staples Center í nótt þar sem Lakers heiðruðu minningu gamla eiganda síns, Jerry Buss, sem lést nýverið með góðum 113-99 sigri í þessu gamalgróna einvígi risanna.
Sjö liðsmenn Lakers gerðu 10 stig eða meira í leiknum, stigahæstur var Dwight Howard með 24 stig og 12 fráköst og Kobe Bryant bætti við 16 stigum og 7 stoðsendingum. Hjá Boston var Paul Pierce með 26 stig, 4 fráköst og 5 stoðsendingar.
Steve Nash gerði 14 stig í leiknum og gaf 7 stoðsendingar og skráði sig um leið ofar í sögubækur stoðsendinganna en hann hefur nú gefið samtals 10.144 stoðsendingar í NBA deildinni. Nash komst því upp í 4. sæti listans yfir flestar stoðsendingar í sögu NBA og fór í nótt fram úr einni af skærustu stjörnu Lakers allra tíma, Magic Johnson.
Úrslit næturinnar:
FINAL
7:00 PM ET
MEM
88
TOR
82
| 19 | 24 | 23 | 22 |
|
|
|
|
|
| 14 | 18 | 25 | 25 |
| 88 |
| 82 |
| MEM | TOR | |||
|---|---|---|---|---|
| P | Randolph | 17 | Anderson | 19 |
| R | Randolph | 18 | Gay | 9 |
| A | Conley | 6 | DeRozan | 5 |





