HomeFréttirKobe kenndi Mark Cuban dýrmæta lexíu

Kobe kenndi Mark Cuban dýrmæta lexíu

Mark Cuban eigandi Dallas Mavericks getur líklega sjálfum sér um kennt fyrir tap Dallas gegn Los Angeles Lakers fyrr í dag.  Lakers vann leikinn 103-99 en Kobe Bryant var lykilmaður í sigri Lakers þar sem hann skoraði 38 stig, tók 12 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.  Hann klikkaði ekki úr skoti í fjórða leikhluta og sá þannig til þess að Lakes ynni sinn þriðja leik í röð.  Hlutverk Mark Cuban í þessu öllu saman byrjaði fyrir nokkrum dögum þegar hann stakk uppá því að  eigendur Lakers myndu segja upp samningi Kobe Bryant til þess að losna undan því að borga launaskattinn.  
 

Kobe Bryant svaraði þessu með stæl á vellinum og óhætt að segja að twitter aðgangur Cuban hafi logað eftir leikinn.  Stuðningsmenn Lakers létu hann heyra það og tók Cuban því uppá því að endursenda þau ljótustu til þess að sýna fram á dónaskapinn.  Kobe Bryant svaraði þessu þó best sjálfur þegar hann sendi frá sér þetta tweet: 

 

Kobe Bryant ?@kobebryant

Amnesty THAT

 

Margir vissu það eflaust fyrir en nú hefur Mark Cuban lært sína lexíu og mun líklega ekki kveikja í Kobe Bryant fyrir leiki liðanna á næstunni.  Hann sendi svo sjálfur frá sér tvít þegar Kobe var búinn að svara honum sem hljóðaði svona: 

 

Mark Cuban ?@mcuban

Nice to know there is a least one team and their players, outside of the Mavs, that listen to everything I say.

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -