spot_img
HomeFréttirÞjálfaranámskeið FIBA Europe

Þjálfaranámskeið FIBA Europe

Körfuknattleikssamband Íslands auglýsir eftir umsóknum á FIBA Europe Coaching Certificate. Um er að ræða evrópskt þjálfaranám sem spannar 3 sumur, 2013, 2014 og 2015. Umsækjandi þarf að skuldbinda sig í þrjú ár sem þátttakandi í þessu námi.
 
KKÍ á eitt öruggt pláss á námskeiðinu en möguleiki á öðru er fyrir hendi en það kemur í ljós þegar allar þjóðir hafa sent umsóknir sínar inn.
 
Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Friðriki Inga Rúnarssyni, framkvæmdarstjóra KKÍ með því að senda honum tölvupóst á [email protected].
 
Umsóknum skal skilað til skrifstofu KKÍ eða á netfangið [email protected] fyrir 15. mars næstkomandi. Umsækjendur þurfa að taka fram þjálfaramenntun, þjálfarareynslu og aðra menntun sem gæti nýst umsækjanda.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -