spot_img
HomeFréttirKörfuboltabúðir KFÍ 2013

Körfuboltabúðir KFÍ 2013

Körfuboltabúðir KFÍ hefjast miðvikudaginn.5 júní kl.10.00 og þeim lýkur kl.12.00 mánudaginn 10. júní. Samhliða búðunum verður boðið upp á þjálfaranámskeið frá föstudeginum 7. júní til sunnudagsins 10. júni og verður ekki rukkað fyrir námskeiðið. Þarna er klárlega á ferðinni kjörið tækifærifyrir metnaðarfulla þjálfara að slá tvær flugur í einu höggi, bæta við þekkingu sína og njóta töfra Vestfjarða!
 
Skráningar í búðirnar og á þjálfaranámskeiðið sendist á netfangið [email protected] , einnig hægt að fá frekari upplýsingar hjá Guðjóni Þorsteinssyni í síma 896-5111.
 
Taka verður fram í skráningu:
* Nafn iðkenda og kennitölu
* Forráðamaður, netfang og símanúmer
* Félag (ekki nauðsynlegt)
* Hvað iðkandinn er skráður í (allur pakkinn, eða hlutar)
* Sérþarfir iðkenda (lyf, ofnæmi og annað)
 
Verð fyrir þjálfun, gistingu og fullt fæði er kr.40..000 samtals.
Ef einstakir hlutar pakkans eru teknir út þá kostar hver eining:
Stakar búðir kosta kr.22.000, gisting í 6 nætur kr.8.000 og fullt fæði kr.15.000.
 
Tryggingargjald fyrir herbergi er kr.2000 sem greiðist til baka við brottför.
 
Þegar pöntun er móttekin er sent staðfesting til baka.
 
Praktísk atriði
Gistingin er svefnpokagisting, boðið er upp á rúm en taka þarf með svefnpoka eða sængur og kodda.
Foreldrar/fararstjórar munu hafa aðgang að þvottavélum þannig að óþarfi að hafa föt til skiptana fyrir alla dagana.
Frítt verður í sund fyrir þátttakendur þannig að upplagt að taka sundfötin með og teygja úr sér í pottinum á milli æfinga
 
Mynd úr safni/ Jafnan er fjölmennt við þessar stóru og miklu körfuboltabúðir þeirra Ísfirðinga. 
Fréttir
- Auglýsing -