spot_img
HomeFréttirÚrslit: Grindavík 1-0 Stjarnan

Úrslit: Grindavík 1-0 Stjarnan

Grindavík hefur tekið 1-0 forystu í úrslitaeinvígi Domino´s deildar karla eftir stóran og öruggan 108-84 sigur á Stjörnunni. Reyndar voru fyrstu þrír leikhlutarnir bæði jafnir og spennandi en Grindvíkingar voru einráðir í fjórða leikhluta og það gersamlega rigndi í Röstinni.
 
Aaron Broussard og Jóhann Árni Ólafsson fóru mikinn í liði Grindavíkur í kvöld og skoruðu saman 65 af 108 stigum liðsins. Liðin mætast í sinni annarri viðureign í Ásgarði þann 19. apríl næstkomandi.
 
Grindavík-Stjarnan 108-84 (26-18, 20-30, 28-24, 34-12)
 
 
Grindavík: Aaron Broussard 39/12 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 26, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14/7 fráköst/4 varin skot, Samuel Zeglinski 13/4 fráköst/7 stoðsendingar, Þorleifur Ólafsson 11/6 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 3, Jens Valgeir Óskarsson 2, Björn Steinar Brynjólfsson 0, Ryan Pettinella 0, Daníel G. Guðmundsson 0, Jón Axel Guðmundsson 0, Davíð Ingi Bustion 0.
 
Stjarnan: Jarrid Frye 28/12 fráköst/4 varin skot, Brian Mills 19/10 fráköst/3 varin skot, Justin Shouse 19/4 fráköst/5 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 7/5 fráköst, Jovan Zdravevski 7, Kjartan Atli Kjartansson 2, Fannar Freyr Helgason 2/5 fráköst, Oddur Rúnar Kristjánsson 0, Sæmundur Valdimarsson 0, Magnús Bjarki Guðmundsson 0, Dagur Kár Jónsson 0, Daði Lár Jónsson 0.
 
Mynd/ [email protected] – Grindvíkingar höfðu ástæðu til að fagna í Röstinni í kvöld.
  
Fréttir
- Auglýsing -