Í sögu NBA úrslitanna hefur tvíeyki oftar en ekki skotið upp kollinum og má færa það yfir á svo kallað „brómans“ (Bromance) sem erfitt er að íslenska en flestir þekkja. Sum þessara sambanda hafa virkað inn á vellinum þrátt fyrir að einstaklingarnir hafa ekki verið perlu vinir utan hans en svo eru það öll hin.
Sum þessara sambanda hafa ekki endilega verið milli tveggja leikmann heldur líka milli leikmanns og þjálfara og ætlum við að rifja upp nokkur „brómöns“ sem hafa orðið til í gegn um tíðina.
Hérna er að sjálfsögðu átt við þegar tveir einstaklingar hafa aftur og aftur barist innan vallar, hlið við hlið, til að ná settu marki og saman náð þessu takmarki sínu.
Tim Duncan og Gregg Popovich
Sennilega er samband þeirra Pop og Duncan besta „brómansið“ sem enn er í gangi í NBA deildinni. Tvíeykið hefur staðið saman í 194 leikjum í úrslitakeppni og munu hiða minnsta standa í fjóra leiki til viðbótar. Þessir leikir spanna 16 tímabil með Spurs eða síðan Duncan kom í deildina 1997.Það má vera að þetta dúó sé minnst talað um af öllum þeim sem við teljum upp en það er svo sannarlega vel heppnað.
Koby Bryant og Phil Jackson
Koby Bryant hefur spilað alls 220 leiki í úrslitum og situr hann í öðru sæti yfir fjölda leikja af þeim leikmönnum sem spila enn í dag. Phil Jackson hefur verið partur af 180 þeirra. Næstum 82% af þeim leikjum sem Bryant hefur spilað á glæstum ferli sínum hefur verið í þessu Bryant-Jackson dúói og saman unnu þeir fimm meistaratitla og spiluðu þar fyrir utan tvisvar í lokaúrslitum.Samband þessara tveggja var kannski ekki jafn áferðarfagurt og félaganna hjá Spurs en það er síður minna árangursríkt.
Red Auerbach og Bill Russel
Sem aðalþjálfari og stjörnuleikmaður Boston Celtics unnu félagarnir saman níu NBA titla á tíu árum.Boston vann sinn fyrsta titil á nýliðaári Russels, 1957, og töpuðu svo í úrslitum árið eftir. Eftir það vann Boston átta titla í röð eða þangað til að Auerbach hætti að þjálfa liðið 1966. Aurerbach tók við stöðu framkvæmdarstjóra Celtics og gerði Russel að spilandi þjálfara. Það eitt og sér sýnir gæðin í „brómansinum“ milli þessara meistara og saman gerðu þeir Celtics að sigursælasta klúbbi NBA deildarinnar.
John Stockton og Karl Malone
Stockton kom ári á undan Malone til Utah Jazz og má segja að það hafi verið „brómans“ við fyrstu sýn þegar þessir kappar byrjuðu að spila saman. Þeir eyddu 18 árum hjá Jazz og fóru alltaf í úrslit.Það er auðvelt að segja að Jazz hafi verið heppið að fá slík gæði tvö tímabil í röð en það sem merkilegra er, er að þessir kappar voru valdir í miðju valinu, Stockton númer 16 og Malone númer 13. Það má því segja að þeim hafi verið ætlað að spila saman.
Þrátt fyrir að hafa aldrei landað þeim stóra saman náðu þeir að gleðja áhorfendur deildarinnar með mögnuðum leik tímabil eftir tímabil.
Kevin Garnett og Paul Pierce
Þrátt fyrir skort á langlífi í sambandi Pierce og Garnetts hafa þeir félagar myndað ágætt vígi í Bostonborg.Það má segja að samband þeirra sé eins og rómantísk Hollywood bíómynd og eins og staðan á þeim er núna, sökum aldurs, má líkja því við að þeir séu að tala saman í símann og bíða eftir að hinn skelli á. Hvorugur er tilbúinn til að hætta og hafa þeir því sýnt samstöðu í því að hætta ekki. Málið er einfalt ef annar hvor þeirra fer eða hættir mun hinn gera slíkt hið sama og má því segja að „brómansinn“ milli þeirra sé einskonar pakkadíll fyrir Boston.
Síðan að Garnett kom til Boston 2007 hefur liðið aldrei verið slegið út úr fyrstu umferð í úrslitum en eru hættulega nálægt því núna. Það breytir því ekki að þetta er merkileg staðreynd.
Til að halda áfram með Hollywood bíómyndina þá voru þeir félagar góðir vinir sem guttar og bjó Garnett til að mynda hjá fjölskyldu Pierce öðru hverju. Það má því segja að „brómansinn“ nái langt aftur.
Michael Jordan og Scottie Pippen

Pippen gekk ekki að leiða Chicago liðið lengra en í aðra umferð úrslitakeppninnar í fjarveru Jordans en þegar meistari MJ snéri til baka vann liðið aftur þrjá titla í röð. Þeir fóru báðir að gera eitthvað annað 1998 en Pippen spilaði með Rockets og Trail Blazers á meðan MJ spilaði golf. Jordan snéri svo til baka til að spila með Wizards en hvorugum þeirra tókst að gera nokkuð með öðrum liðum eða í sitt hvoru lagi.
Magic Johnson og Kareem Adbul-Jabbar
Á meðan þessir kappar spiluðu saman þá leit alls ekki út að það væri nokkur „brómans“ á milli þessara kappa en Jabbar drap þá hugsun í viðtali 2006. Hann sagði að þeir hefðu verið mjög góðir vinir þrátt fyrir aldursbilið á milli þeirra.Hvað sem aldursbilið á milli þeirra var þá sýndi það sig svo sannarlega ekki á vellinum. Jabbar spilaði 237 leiki í úrslitakeppninni, sem er annar mesti fjöldi sem nokkur hefur náð, og í 158 þeirra var Magic maðurinn sem kom boltanum á hann.
Það má segja að „brómansinn“ þarna sé sá hæfileikaríkasti af þeim öllum en þeim tókst saman að vinna fimm titla á 10 árum.
Shawn Kemp og Gary Payton
Kraftmikill „brómans“ Kemp og Payton sýndi sig kannski best í tölvuleikjum á borð við NBA-Jam en þrátt fyrir það var voru þeir frábært tvíeyki á dansgólfinu líka.Þrátt fyrir að finna sig hvergi á listum yfir flesta spilaða leiki í úrslitum voru þeir frábærir að horfa á. Þeir háðu frábæra baráttu gegn Bulls 1996 þar sem þeir féllu úr leik í sex leikjum og fljótlega eftir það fór Kemp til Cleveland. Þegar Kemp fór höfðu þeir kappar spilað saman 74 leiki í úrslitakeppninni.
Þeir voru iðulega á skjánum hjá fólki yfir flottustu tilþrifin nánast allan 10 áratuginn og þrátt fyrir að vera síst blómum skreytta „brómansið“ voru þeir án nokkurs vafa það mest spennandi að horfa á.




