HomeFréttirMunu Kings flytja til Seattle?

Munu Kings flytja til Seattle?

Eftir margra mánaða getgátur um hvort Sacramento Kings flytji til Seattle virðist sem svo að Kingsliðið staldri við í Sacramento um sinn.
Sam Amick, blaðamaður á USA Today, sagir á twitter síðu sinni að deildin hafi tilkynnt að nefndin sem tekur fyrir flutninga á liðum mæli með að stjórnin hafni beiðni um flutning.
 
Brian Windhorst hjá ESPN segir jafnframt á sinni twitter síðu að eigendur NBA liðanna þurfi að kjósa um málið í næstu viku og eigi von á að þeir fylgi tillögum nefndarinnar.
 
Ef að eigendur liðanna fylgja tillögum er ljóst að Sacramento haldi NBA liðinu sínu enn um sinn.
 
Fyrir alls ekki svo löngu sýndist það sem svo að Seattle fengi sárabætur fyrir að missa SuperSonics til Oklahoma City en liðið flutti frá borginni árið 2008 og fékk nafnið Thunder. Búið var að ná samkomulagi við Maloof fjölskylduna, eigendur Kings, og hóp fjárfesta í Seattle í janúar síðastliðnum og allt leit því út fyrir að liðið myndi flytja.
 
David Stern gaf Kevin Johnsons, fyrrum leikmanni Suns og núverandi borgarstjóra Sacramento, tækifæri á að bjarga því að liðið yrði flutt alveg eins og hann gerði árið 2011 þegar fyrirhugað var að flytja Kings til Anaheim. Ljóst er að ræða Johnsons virkaði og virðist hann hafa bjargað því að liðið verði flutt í annað sinn á tæpur tveimur árum.
 
Kings hafa ekki náð yfir 50% sigurhlutfall síðan tímabilið 2005-06 en þrátt fyrir það á það einn stærsta stuðningsmannahóp deildarinnar og er ljóst að liðið þarf að fara að afreka eitthvað til að fylla stuðningsmenn stolti og hafa þá hliðholla liðinu. Ef ekki er ljóst að Sacramentoborg muni verða hættulega nálægt því að missa liðið eitthvert annað á komandi árum
 
Fréttir
- Auglýsing -