HomeFréttirChris Hansen svarar flutningsnefndinni

Chris Hansen svarar flutningsnefndinni

Chris Hansen, sem leiðir hóp fjárfestanna sem koma til með að eignast Kings, hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að nefndin sem sér um flutning NBA liða mælti með að Kings yrðu áfram í Sacramento. Yfirlýsingin var birt á SonicArena.com
 
„Þó að við séum virkilega vonsvikin yfir ákvörðun nefndarinnar að mæla gegn því að liðið yrði flutt viljum við að það komi fram að hópurinn hefur skuldbundið sig til að ná þessu í gegn. Eins þið öll vitið þá höfum við bindandi samning um að fjárfesta í Kings fyrir það sem yrði met fé fyrir lið í NBA deildinni, höfum sett saman eitt besta eignarhaldsfélag sem nokkurn tímann hefur verið uppi til að fjárfesta í atvinnumannaliði, höfum boðið mun hærra verð en gengið hefur verið frá í Sacramento Group og höfum sett allt féð sem ætlað er í þetta í vörslu. Við munum því ótvírætt halda áfram með okkar áætlun og mæla fyrir því að liðinu verði fundinn nýr staður og að samningar um kaupinn verði kláruð á eigendafundinum núna í maí.“
 
Það vottar fyrir hroka í yfirlýsingu Hansens og furða einhverjir sig á þessari yfirlýsingu frá honum. Enginn í Sacramento hafði þó miklar áhyggjur eftir yfirlýsinguna og sögðu í raun restina af ferlinu ekki vera neitt annað en formsatriði.
 
Eigendafundur deildarinnar verður núna 13. maí og munu þeir kjósa um bæði flutninginn og söluna á liðinu til Hansens og hans fjárfesta. Ekki er gert ráð fyrir neinum stórkostlegum fréttum eftir fundinn enda er gert ráð fyrir að eigendur fylgi tilmælum nefndarinnar og hafni tillögunni.

Mynd: Chris Hansen ætlar að gera allt til að koma Kings til Seattle / Hayley Young

 
Fréttir
- Auglýsing -