HomeFréttirCeltics og Rockets með góða sigra

Celtics og Rockets með góða sigra

Boston Celtics og Houston Rockets tryggðu sér sjötta leikinn í seríunum gegn New York og Oklahoma City og urðu þar með 11. og 12. liðin í sögunni til að tryggja sér þennan leik eftir að hafa lent 3-0 undir.
 
Boston vann New York 92-86 þar sem Kevin Garnett var með 16 stig og 18 fráköst. Jeff Green henti niður 18 stigum og þeir Brandon Bass og Jason Terry gerðu 17 stig hvor. Doc Rivers þjálfari Boston notaði aðeins sjö leikmenn í leiknum og spurningin er hvort að það muni há þeim í næsta leik á föstudaginn en hann verður á heimavelli Boston.
 
Carmelo Anthony kláraði leikinn með 22 stig fyrir New York en virtist hafa meitt sig á vinstri öxl í fjórða leikhluta. Mike Woodson, þjálfari New York, sagði að hann væri fínn eftir leikinn en það á eftir að koma í ljós hversu fínn hann verður á föstudaginn. Raymond Felton sallaði niður 21 stigi og J.R. Smith var með 14.
 
Houston vann Oklahoma City 107-100 og var Jason Harden sjóðandi með 31 stig og 8 fráköst. Omar Asik setti niður 21 stig og tók 11 fráköst.
 
Hjá Oklahoma City henti Kevin Durant niður 36 stigum og reif niður 7 fráköst og Reggie Jackson bætti við 20 stigum á töfluna.
 
Næsti leikur þessara liða er einnig á föstudaginn og það í Houston og geta rauðir því jafnað einvígið og knúið fram oddaleik.
 
Fréttir
- Auglýsing -