HomeFréttirMemphis og New York jafna einvígin

Memphis og New York jafna einvígin

Memphis og New York jöfnuðu einvígi sín gegn Oklahoma City og Indiana Pacers og standa leikar því 1-1. Á meðan leikur Memphis og OKC var jafn og spennandi var ekki það sama uppi á teningnum í New York.
 
Jafnt var á öllum tölum hjá Grizzlies og Thunder til loka leiksins. Það fór þó þannig að Grizzlies hafði betur 99-93 og fer því með einn sigur með sér aftur til Memphis.
Mike Conley var atkvæðamestur Grizzlies með 26 stig, 10 fráköst og 9 stoðsendingar og eins og sést var hann hættulega nálægt þrennunni. Marc Gasol bætti við 24 stigum og Zack Randolph var með 15.
 
Hjá Oklahoma City var Kevin Durant einnig mjög nálægt þrennunni en hann setti niður 36 stig, tók 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Ibaka kom honum næstur með 11 stig.

 

 
Spike Lee var að sjálfsögðu mættur í pallana þegar Knicks unnu öruggan sigur á Pacers 105-79. „Melo“, Carmelo Anthony var stigahæstur New York manna með 32 stig og 9 fráköst. Iman Shumpert var svo næstur honum með 15 stig.
 
Hjá Pacers var Paul George með 20 stig og George Hill var honum næstur með 15 stig.

 

 
Næsti leikur þessara liða er á laugardaginn en í kvöld mætast Miami Heat og Chicago Bulls í Miami og svo San Antonio Spurs og Golden State Warriors í San Antonio.
 
Chicago og San Antonio leiða einvígin 1-0 og gætu því komið sér í vænlega stöðu eftir leiki kvöldins. Leikur Heat og Bulls verður sýndur í beinni á Stöð 2 sport og hefst kl. 23:00
 
Fréttir
- Auglýsing -