HomeFréttirGeorge Karl útnefndur þjálfari ársins

George Karl útnefndur þjálfari ársins

George Karl hefur verið útnefndur þjálfari ársins fyrir tímabilið 2012-13 í NBA deildinni en þetta var tilkynnt vestanhafs í morgun. Fyrir vikið hlýtur Karl Red Auerbach bikarinn sem veittur er fyrir þjálfara ársins.
 
Karl hefur unnið 1074 leiki og er með 0.595% sigurhlutfall á þeim 24 árum sem hann hefur þjálfað í deildinni. Hann stýrði liði Denver Nuggets í vetur og kláraði tímabilið með því að skila Nuggets í þriðja sæti vesturstrandarinnar þar sem liðið vann 57 leiki og tapaði 25.
 
Það er alltaf erfitt að velja hvaða þjálfari hefur staðið sig best í NBA deildinni en þegar þjálfaranum tekst að skila liðinu ofar en áætlað var þrátt fyrir meiðsli og mótlæti er erfitt að líta fram hjá því. Er George Karl því vel að þessum verðlaunum kominn.

Mynd/ – b/r

 
 
Fréttir
- Auglýsing -