Njarðvíkingar veita árlega Elfarsbikarinn til efnilegasta leikmanns yngri flokka en bikarinn er gefinn til minningar um Elfar Þór Jónsson sem lék lengi vel með Njarðvík. Meðal fyrri handhafa bikarsins má nefna frábæra leikmenn eins og Guðmund Jónsson, Pál Kristinsson og Loga Gunnarsson.
Í ár var það Maciej Baginski sem fékk bikarinn en hann hefur tekið skrefið inní meistaraflokk hjá félaginu með miklum sóma síðastliðin tvö ár og þótt mjög efnilegur á landsvísu. Það er Jón Þór Elfarsson sem afhendir bikarinn en hann er ásamt Maciej á myndinni hér fyrir ofan.
Fyrri bikarhafar eru:
2012 – Elvar Már Friðriksson
2011 – Ólafur Helgi Jónsson
2010 – Oddur Birnir Pétursson
2009 – Óli Ragnar Alexandersson
2008 – Dagmar Traustadóttir
2007 – Rúnar Ingi Erlingsson
2006 – Kristján Sigurðsson
2005 – Hjörtur Hrafn Einarsson
2004 – Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir
2003 – Guðmundur Jónsson
2002 – Jóhann Árni Ólafsson
2001 – Ólafur Aron Ingvason
2000 – Þorbergur Þór Hreiðarsson
1999 – Óskar Örn Hauksson
1998 – Örlygur Aron Sturluson
1997 – Eva Stefánsdóttir
1996 – Logi Gunnarsson
1995 – Rannveig Randversdóttir
1994 – Páll Kristinsson
1993 – Hólmfríður Karlsdóttir
1992 – Sigurður Þór Kjartansson
1991 – Örvar Þór Kristjánsson
1990 – Ægir Örn Gunnarsson




