HomeFréttirMeistarar meistaranna í kvöld

Meistarar meistaranna í kvöld

Það er við hæfi að meistarar meistaranna fari fram í meistaramánuðinum október og ríður meistaraflokkur karla á vaðið þegar Grindavík og Stjarnan mætast í Röstinni í kvöld kl. 19:15.
 
Í ár mun ágóðinn af leiknum renna í afreksstarf KKÍ og kostar 1500 krónur inn fyrir 16 ára og eldri en frítt er fyrir þá yngri. Aðgangskort KKÍ gilda ekki fyrir þennan leik þar sem um góðgerðarleik er að ræða.

Fréttir
- Auglýsing -