Kristinn Jónasson fyrrum leikmaður Hauka og ÍR hefur ákveðið að taka slaginn með Stjörnunni í vetur. Kristinn er 205 cm miðherji og fær Fannar Helgason því ágætis aðstoð við að fylla upp í teig Stjörnumanna.
Kristinn lék síðast í úrvalsdeild tímabilið 2011-2012 og þá með ÍR. Þar skilaði hann 7,3 stigum og 4,0 fráköstum á rétt tæpum 18 mínútum í leik. Hann lék fjóra leiki í 1. deild karla á síðustu leiktíð og þá með Augnabliki.
Mynd/ Kristinn Jónasson verst hér Fannari Helgasyni í leik ÍR og Stjörnunnar




