HomeFréttirLeikstjórnandi Hauka með fyrstu þrennu vetrarins

Leikstjórnandi Hauka með fyrstu þrennu vetrarins

Haukamaðurinn Emil Barja á heiðurinn að fyrstu þrennu tímabilsins en þeirri landaði hann í gærkvöldi þegar Haukar lögðu Val í nýliðaslag Domino´s deildar karla.
 
Leikstjórnandinn fjjölhæfi gerði 11 stig í leiknum fyrir Hauka, tók 13 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Einnig stal hann fimm boltum en tapaði aðeins einum og við það rakaði hann saman 31 framlagsstigi.
 
 
Mynd: Emil Barja var allt í öllu í Schenker-höllinni í gærkvöldi.
Fréttir
- Auglýsing -