spot_img
HomeFréttirHörður og Valladolid mæta á heimavöll meistaranna

Hörður og Valladolid mæta á heimavöll meistaranna

CB Valladolid og Real Madrid mætast í ACB deildinni á Spáni í kvöld og þá fær Hörður Axel Vilhjálmsson sína eldskírn. Í sumarlok samdi Hörður við CB Valladolid en þar á undan hafði hann fengið sig lausan frá MBC í þýsku úrvalsdeildinni.
 
 
Það er því óhætt að segja að leiktíðin hefjist með stæl hjá CB Valladolid sem þykja ekki fyrirfram líklegir til stórræða á gríðarsterkum heimavelli Madrídinga. Hjá Madríd er valinn maður í hverju rúmi og nægir þar að nefna m.a. Rudy Fernández, Felipe Reyes, Nikola Mirotic, Jaycee Carroll og Sergiuo Llull svona rétt aðeins til að varpa mynd á eitt allra sterkasta lið Evrópuboltans.
  
Fréttir
- Auglýsing -