Miðherjinn Aleksa Ilic, sem yfirgaf herbúðir Njarðvíkur á dögunum, er mögulega á leiðinni til Ármanns samkvæmt orðinu á götunni.
Eins og greint var frá í vikunni lauk Ilic störfum hjá Njarðvíkingum eftir að hafa skilað 13,4 stigum og 7,9 fráköstum að meðaltali í sjö leikjum í Bónusdeild karla í upphafi tímabils. Ekki hefur enn verið staðfest hvort hann sé að semja við Ármann eða einungis að halda sér í formi með liðinu í landsleikjahléinu, en félagaskipti hans væru eflaust mikill liðsstyrkur fyrir Ármenninga í baráttunni í deildinni.
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]





