HomeFréttirTólf manna hópur Íslands klár í slaginn gegn Bosníu í Höllinni í...

Tólf manna hópur Íslands klár í slaginn gegn Bosníu í Höllinni í kvöld

Körfuknattleikssamband Íslands hefur opinberað tólf manna leikmannahóp A-landsliðs karla sem mætir Bosníu og Hersegóvínu í Laugardalshöll í kvöld, fimmtudaginn 26. nóvember, klukkan 19:30 í undankeppni HM 2027. Miðasala á leikinn fer fram í Stubb.

Íslenska liðið teflir fram öllum sínum helstu lykilmönnum í leiknum í kvöld, þar á meðal Tryggva Snæ Hlinasyni, Martin Hermannssyni, Elvari Má Friðrikssyni, Jóni Axeli Guðmundssyni og Ægi Þór Steinarssyni, auk þess sem Sigurður Pétursson er í hópnum.

Bæði lið eru með þrjá sigra og fimm töp í J-riðli og því er um sannkallaðan úrslitaleik að ræða upp á framhaldið í baráttunni um sæti á lokamótinu í Katar á næsta ári.

Leikmannahópur Íslands gegn Bosníu í kvöld:

  • #3 Ægir Þór Steinarsson
  • #5 Hilmar Smári Henningsson
  • #6 Jón Axel Guðmundsson
  • #9 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson
  • #10 Elvar Már Friðriksson
  • #12 Kári Jónsson
  • #13 Haukur Helgi Pálsson
  • #14 Kristinn Pálsson
  • #15 Martin Hermannsson
  • #18 Sigurður Pétursson
  • #32 Tryggvi Snær Hlinason
  • #34 Styrmir Snær Þrastarson
Fréttir
- Auglýsing -