HomeFréttirRýnt í leiki kvöldsins

Rýnt í leiki kvöldsins

Þar sem búið er að draga í 32 liða úrslit karla í Poweradebikarnum þá skulum við snúa okkur að aðalmáli dagsins, 3. umferð í Dominosdeild kvenna:
 
Hamar – Snæfell
Það er erfitt að vera nýliðinn eins og leikurinn á móti KR sýndi fram á. Hamarsstúlkur sýndu hinsvegar í fyrstu umferð, á móti Njarðvík, að þær eru til alls líklegar á heimavelli og gæti orðið erfitt fyrir lið að sækja stig þangað.
Eftir naumt tap í framlengingu gegn Grindavík í fyrstu umferð sýndu Snæfellskonur sitt rétta andlit í seinustu umferð þegar þær fóru illa með Valskonur. En þær eru að slípa sig saman eftir miklar mannabreytingar í sumar. Þær verða til alls líklegar í vetur ef það tekst vel til og ef þær fá inn Berglindi Gunnarsdóttur. Hólmarar mæta ekki fullmannaðir í Frystikistuna í kvöld því Hildur Sigurðardóttir verður fjarverandi sökum meiðsla.
 
Njarðvík – KR
Njarðvík er með betri hóp en margan grunaði og létu Hauka aldeilis finna fyrir sér í seinustu umferð. Þær hljóta að koma með bullandi sjálfstraust í leikinn í kvöld og þarf KR að skoða það vel hvernig þær ætli sér að stöðva þær fyrir utan teig í kvöld. Þær eru þeim kosti gæddar að það er ekki að sjá á liðinu þegar Guðlaug Björt Júlíusdóttir er hvíld því að Aníta Carter Kristmundsdóttir leysir hana af hólmi eins og byrjunarliðsmaður.
Það hefur mikil áhrif á KRinga að hafa ekki leikmenn eins og Helgu Einarsdóttur og Bergdísi Ragnarsdóttur leikhæfar en þær eru þó það lánsamar að hafa Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttir sem er búin að vera spila eins og brjálæðingur í fyrstu tveimur leikjunum. Hún gefur þann hæfileika að vilja heilt lið með sér með báráttuanda sínum. Magnaði endurkomusigur þeirra gegn Hamri í seinustu umferð ætti að fylgja liðinu í kvöld.
 
Grindavík – Haukar
Grindavík byrjaði tímabilið á góðum sigri gegn Snæfelli en biðu svo afhroðs gegn Keflavík. Eitthvað segir mér að Pálína Gunnlaugsdóttir muni ekki eiga tvo dapra leiki í röð og finn ég til með þeirri Haukastúlku sem mun þurfa passa hana í kvöld.
Haukar eru eina liðið án sigurs eftir þessar tvær fyrstu umferðir tímabilsins og veit ég fyrir víst að þær eru gríðarlega ákveðnar að enda þá taphrinu í kvöld. Þær verða mættar með Bjarna Magnússon þjálfara sinn aftur á hliðarlínuna í kvöld, en hann er búinn að missa af fyrstu tveimur leikjunum. Einnig mætir Gunnhildur Gunnarsdóttir aftur eftir að hafa misst af leiknum á móti Njarðvík sökum meiðsla sem hún hlaut gegn Keflavík. En hún spilaði aðeins 5 mínútur í þeim leik sökum villuvandræða í fyrri hálfleik áður en hún meiddist svo eftir aðeins 30 sek í seinni hálfleiknum. Það ætti að muna um minna að fá heilan leik með mikilvægasta leikmann Hauka í fyrra og þjálfarann aftur á svæðið.
 
Valur – Keflavík
Eftir sannfærandi sigur á móti KR í fyrstu umferð voru Valsstúlkur síður en svo sannfærandi á móti Snæfell í seinustu umferð og ætla þær eflaust að bæta upp fyrir það í kvöld. Sýna ríkjandi meisturum að þær eru vel að efstasætisspánni komnar. Einnig vilja þær eflaust hefna fyrir tapið gegn Keflavík í Meistarakeppninni.
Keflavíkurstúlkur virðast hins vegar vera brjálaðar yfir því að hafa verið spáð 5. sætinu og eru eina liðið sem hefur unnið fyrstu tvo leiki sína. Ekki sannfærandi á móti Haukum en sýndu fram á frábæran karakter og þrautsegju með að klára þann leik. Porsche Landry sýndi í þeim leik að það skal alls ekki vanmeta hana út frá hæð hennar. Ungu stelpurnar eru að koma mjög sterkar inn og eru ekkert að kippa sér upp við brotthvarfs Pálínu Gunnlaugsdóttur né meiðsla Birnu Ingibjörgu Valgarðsdóttur. Reynsla? Hver þarf hana þegar þú hefur hungraðar ljónynjur.
Fréttir
- Auglýsing -