Valur tekur á móti Keflavík í Domino´s deild kvenna í kvöld og er von á miklum slag. Ágúst Sigurður Björgvinsson staðfesti þó áðan í samtali við Karfan.is að Valur verði án Kristrúnar Sigurjónsdóttur í kvöld vegna meiðsla.
Kristrún er mikilvægur hlekkur í Valsliðinu en hún meiddist á ökkla á æfingu með Valsliðinu. Ágúst bjóst þó ekki við að Kristrún yrði lengi frá heldur ætti hún að verða klár í slaginn á nýjan leik á næstu dögum.



