spot_img
HomeFréttirNasir Robinson sagt upp í Garðabæ

Nasir Robinson sagt upp í Garðabæ

Stjörnumenn sem hafa átt afleita byrjun á leiktíðinni í Domino´s deild karla hafa sagt upp samningi sínum við Nasir Robinson. Garðbæingar verða því án erlends leikmanns í næstu umferð. Þetta staðfesti Snorri Örn Arnaldsson við Karfan.is í dag.
 
 
Nasir lék tvo deildarleiki með Stjörnunni og skoraði að meðaltali 16 stig í leik og tók 8 fráköst. Nasir lék með Stjörnunni gegn Keflavík og Þór Þorlákshöfn en fyrri leiknum tapaði Stjarnan með 25 stiga mun og þeim seinni með 19 stiga mun.
 
Karfan.is náði tali af Snorra Erni Arnaldssyni aðstoðarþjálfara Stjörnunnar:
 
„Nasir er góður drengur en okkur finnst hann ekki alveg passa að okkar leikstíl. Það verður ekki af honum tekið að hann spilar og æfir af krafti, en eftir situr að við höfum tapað fyrstu tveimur leikjum tímabilsins með 19 og 25 stigum og höfum í raun ekki átt séns. Við teljum okkur vera með talsvert betra lið í höndunum en við höfum sýnt hingað til og þurfum að gera einhverjar breytingar á okkar leik til að ná því fram.”
 
Eruð þið komnir með nýjan mann?
„Nei, nú þurfum við að treysta á þann hóp sem við erum með og menn fá tækifæri til að stíga upp og sýna sig. Það eina sem við vitum fyrir víst er að við verðum án erlends leikmanns í næsta deildarleik.”
 
Mynd úr safni/ [email protected]
  
Fréttir
- Auglýsing -