”Bandaríski körfuknattleiksþjálfarinn Jim Dooley er látinn, 69 ára að aldri, eftir erfið veikindi að undanförnu, en hann var landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari ÍR-inga keppnistímabilið 1982-1983.
Dooley á að baki 47 ára feril sem körfuknattleiksþjálfari en auk þess að þjálfa hér á landi umrætt tímabil kom hann hingað til lands til að halda námskeið í körfubolta. Hann þjálfaði aðallega skólalið og unglingalið í Bandaríkjunum á árunum 1965 og fram á þetta ár þegar hann varð að láta af störfum vegna veikindanna.
Hann vann mikið með Pétri Guðmundssyni, fyrrum atvinnumanni í NBA og landsliðsmanni Íslands, sem spilaði einmitt undir hans stjórn hjá ÍR”
tekið af www.mbl.is




