HomeFréttirHaukar fyrstar til að leggja Keflavík

Haukar fyrstar til að leggja Keflavík

Þar kom að því, Haukar varð fyrsta liðið til að leggja Keflavík í vetur þegar þær tóku á móti þeim í Schenkerhöllinni í kvöld. Lokastaðan 92-61 fyrir Hauka.
Eftir gríðarlega svekkjandi ósigur gegn Keflavík í fyrstu umferð voru Haukastúlkur greinilega staðráðnar í því að bæta upp fyrir það og gerðu það svo sannarlega í kvöld. Keflavík beið algjört afhroð. Leikurinn byrjaði mjög jafn en Haukar áttu svo mjög góðan sprett í öðrum leikhluta og náðu góðri forustu. Keflavík gáfust svo hreinlega upp um miðjan þriðja leikhluta og var ekki að spyrja að leikslokum eftir það.
Lele Hardy var óstöðvandi eins og venjulega og var hún næstum því ein og sér með jafn mörg fráköst og allt Keflavíkurliðið en hún var með 25 stig, 21 frákast og 6 stoðsendingar í kvöld. Ekki langt frá henni var Margrét Rósa Hálfdanardóttir með 23 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar.
Hjá Keflavík var Bryndís Guðmundsdóttir með 19 stig og 9 fráköst og henni næstar voru Porsche Landry og Sara Rún Hinriksdóttir með 16 tig hvor.
 
 
Byrjunarlið Hauka: Lovísa Björt Henningsdóttir, Auður Íris Ólafsdóttir, Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir og Lele Hardy.
 
Byrjunarlið Keflavíkur: Bryndís Guðmundsdóttir, Porsche Landry, Sara Rún Hinriksdóttir, Sandra Lind Þrastardóttir og Aníta Eva Viðarsdóttir.
 
Haukar byrjuðu leikinn 4-0 en Keflavík komust svo yfir í stöðunni 8-9 þegar Bryndís Guðmundsdóttir setti þrist. Gaman að segja frá því að á þessum tímapunkti voru 8 leikmenn búnir að skipta stigunum á milli sín. Andy Johnson, þjálfari Keflavíkur, tók leikhlé í stöðunni 14-12 þegar 3:27 voru eftir af leikhlutanum því að hann var ekki ánægður með hvað liðið hans var lélegt að stíga út. Haukar voru komnar með fleiri sóknarfráköst en Keflavík heildarfráköst. Fyrsti leikhlutinn endaði á vítalínunni hjá báðum liðum þar sem Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir settu niður vítaskotin sín. Keflavík leiddi 20-22.
 
Keflavík byrjuðu annan leikhlutann vel á 5-0 áhlaupi áður en að Íris Sverrisdóttir svaraði fyrir Hauka með tveimur þristum í röð. Það slökknaði aldeilis á Keflavík eftir það og urðu þær hægar tilbaka og Haukar fóru því í hvert hraðaupphlaupið á fætur öðru. Ef þær komust ekki í hraðaupphlaup þá settu þær bara niður þrista. Haukar áttu því 20-4 kafla á átta mínútum. Sú eina sem var með einhverri rænu hjá Keflavík var Landry sem skoraði 8 stig í leikhlutanum en það var engan veginn nóg og Haukar kafsigldu Keflavík 29-13 í leikhlutanum og því með nokkuð góða forustu í hálfleik, 49-35.
 
Stigahæstar í hálfleik voru Lele Hardy með 18 stig og 15 fráköst og Margrét Rósa Hálfdanardóttir með 15 stig fyrir Hauka. Hjá Keflavík var það Porsche Landry sem var með 16 stig.
 
Haukar skoruðu 8 stig áður en Keflavík náði að svara í upphafi þriðja leikhlutans, þar var Gunnhildur Gunnarsdóttir með 4. Gríðarlegt andleysi var að merkja í leik Keflavíkur og leyfðu þær Haukum að leika sig grátt hvort sem var í vörn eða sókn. Bjarni Magnússon leyfði sér þann lúxus að hvíla Hardy í þrjár mínútur um miðbik leikhlutans og slaknaði aðeins á vörn Hauka við það en Keflavík náði þó aðeins inn 4 stigum. Haukar voru miklu betri en Keflavík og yfirspiluðu þær annan leikhlutann í röð og með mjög þæginlega 74-46 forustu fyrir loka leikhlutann.
 
Vegna öruggrar forustu Hauka féll spennustigið eðlilega niður í fjórða leikhlutanum og skiptust liðin á því að skora. Keflavík voru samt ekkert að gera sig líklegar til að einu sinni reyna að komast inn í leikinn og var spilamennskan meira upp á að klára leikinn.
 
 
Mynd – Axel Finnur/ Margrét Rósa Hálfdanardóttir átti prýðisleik í kvöld fyrir Hauka
 
Fréttir
- Auglýsing -