Skotið þarf ekki að vera fallegt eða framkvæmt eftir kúnstarinnar reglum til þess að enda ofaní hringnum. Þetta sannar herramaður á “stríðsvellinum” í Brooklyn fyrr á árinu. Af útlitinu að dæma þá er væru fáir sem myndu giska á að hann yrði stigahæsti maður vallarins en í lok upptökunnar virðist sem svo að velgegni hans hafi hreinlega hrakið hina af vellinum. Þessar tvær mínútur eiga eftir að koma þér skemmtilega á óvart.
Það er ekki bara úti á götu sem menn deila um skotstíl eða rétta stöðu því dæmi eru um að mjög færir NBA leikmenn hafi farið langt út fyrir kassan í sínum skotstíl. Sem dæmi má nefna Rick Barry sem skaut sín víti með svokölluðu ömmuskoti. Hann vill þó meina að boðskapurinn sé, skjóttu eins og þér finnst þægilegast að skjóta.




