spot_img
HomeFréttirAlbacete byrjar vel

Albacete byrjar vel

Arnþór Freyr Guðmundsson skipti úr Fjölni í Hauka í sumar en Hafnfirðingum varð ekki kápan úr því klæðinu því Arnþór hélt í sumar út til Spánar í atvinnumennsku þar sem hann leikur með Albacete Basket í fjórðu efstu deild á Spáni.
 
 
Albacete náðu í góðan 60-65 útisigur gegn Students um helgina þar sem Arnþór var með 6 stig á tæpum 30 mínútum og var auk þess með 5 fráköst og 3 stoðsendingar.
 
Albacete hafa unnið fimm leiki af sex það sem af er tímabilinu og eru um þessar mundir í 6. sæti deildarinnar. Næsti leikur liðsins er þann 17. nóvember næstkomandi gegn Real Madrid en það mun vera eiginlegt B-lið Madrídinga. Arnþór meiddist lítillega á nára á dögunum en virðist hafa jaxlað það af sér enda skilaði hann af sér góðum hálftíma um síðustu helgi.
  
Fréttir
- Auglýsing -