HomeFréttirBenedikt Guðmundsson: Aldrei séð svona tölfræði

Benedikt Guðmundsson: Aldrei séð svona tölfræði

“Við vorum lakara liðið í dag, þeir áttu sigurinn fyllilega skilið.  Þeir bara vildu þetta meira” sagði brúnaþungur Benedikt Guðmundsson eftir þriðja tap Þórs í röð í Dominos deildinni.  
“Valsliðið er að taka 35 sóknarfráköst, ég hef aldrie séð svoleiðis, aldrei.  Ég hef þjálfað á öllum stigum, með micro bolta og uppúr og ég hef ekki séð svona.  Við erum teknir hérna svo svakalega í fráköstunum að ég hef aldrei séð svona.  Það getur vel verið að einhver hafi séð svona í Honduras eða eitthvað hafi gerst einhverstaðar þar en ég hef ekki séð þetta sjálfur”  

Valsliðið hafði fyrir leikinn ekki sigrað í efstu deild í 10 ár og þar af voru fyrstu fimm leikir tímabilsins tapleikir, það er því ekki hægt annað en að velta því fyrir sér hvort Þór hafi hreinlega vanmetið Valsliðið?  

“Ekki hugmynd, ekki segja menn.  Við erum ekkert lítið búið að hamra á að mæta í alla leiki klára og alla þessa viku búnir að vera að hamra á sama hlutnum.  Ég neita að trúa því að menn hafi verið að ljúga að mér og hafi vanmetið þá.  Við erum bara ekki betri en þetta”.  

Tap eins og þetta á eftir að reynast Þórsuru dýrkeypt þar sem baráttan í efri hluta deildarinnar er gríðarlega jöfn og hefur líklega ekki verið svona jöfn í fjölda ára.  

“Auðvita er það það, við erum bara ekkert í góðri stöðu, við erum búnir að tapa þremur í röð, við erum á loosing-streaki og verðum að fara að gera eitthvað drastíst”

[email protected] 
mynd : Davíð 

Fréttir
- Auglýsing -