“Rosa barátta, Biggi að spila rosalega vel í dag. Chris Woods er að spila ótrúlega vel líka, hann er að taka 24 fráköst og er samt ekki með flest fráköstin í leiknum, Biggi með 25. Í raun ótrúleg tölfræði líka að Woods er með 13 sóknarfráköst en ekki eitt vítaskot í leiknum. Margir að stíga upp og margir að eiga góðan leik, það er gleðiefni að það eru aðrir en í síðasta leik. Rúnar var frábær í síðasta leik. Við erum að sýna það að eins og í 1. deildinni í fyrra að það er breidd í liðinu, við erum ekki með neina stjörnu en við erum með fullt af strákum sem geta spilað. Við teljum okkur eiga að vera í þessari deild”.
Valsmenn voru ekki langt frá því að stela sigrinum gegn ÍR í seinustu umferð og því spurning hvort þetta sé einfaldlega stígandi í liði Vals þessa dagana?
“Mikill stígandi í þessu. Við förum í gegnum rosalega erfitt undirbúningstímabil, spilum mikið af leikjum á stuttum tíma og það fór kannski svolítið með sjálfstraustið hjá sumum. Núna erum við að spila einn leik á viku og það er mikill munur á þessu milli leikja. Síðasti leikur flottur hjá okkur sóknarlega en skelfilegur varnarlega. Við vinnum þennan leik á baráttu”.




