Það var rólegt í NBA deildinni þessa nóttina en aðeins þrír leikir voru á dagskrá.
Portland vann sinn sjötta leik í röð þegar þeir unnu Toronto 118-110 en framlengja þurfti leikinn til að skera úr um sigurvegara. Rudy Gay jafnaði leikinn fyrir Toronto og var þetta í sjötta skipti á síðustu fjórum tímabilum sem að kappinn skorar sigur-, eða jöfnunar körfu leiksins þegar minna en 10 sekúndur eru eftir af fjórða leikhluta. Gay tók þar með fram úr Carmelo Anthony sem hefur fimm sinnum skorað slíka körfu. Gay skoraði 30 stig og var með 10 fráköst en það dugði skammt. DeMar DeRozan bætti svo við 29 stigum fyrir Toronto.
Leikmenn Portland voru í miklu stuði og voru fimm leikmenn liðsins með 10 stig eða meira. LaMarcus Aldridge og Damian Lillard settu niður 25 stigin hvor og Aldridge bætti 11 fráköstum í safnið. Nicolas Batum var með 24 stig, Wesley Matthews skoraði 17 og Maurice Williams kom með 13 stig af bekknum.
Úrslit næturinnar:
FINAL
1:00 PM ET
POR
![]()
118
W
TOR
![]()
110
| Q1 | Q2 | Q3 | Q4 | F | |
|---|---|---|---|---|---|
| POR | 31 | 26 | 22 | 23 | 118 |
|
|
|
|
|
|
|
| TOR | 29 | 25 | 15 | 33 | 110 |
Overtime
| Game Stat | FG% | 3P% | FT% | REB | TO |
|---|---|---|---|---|---|
| POR | 44.4 | 46.9 | 75 | 46 | 15 |
| TOR | 44.7 |
|






