Ritstjóri karfan.is vaknaði með bros á vör í morgun og ekki skánaði það þegar hann sá úrslit næturinnar í NBA boltanum. Jú Bobcats unnu annan körfuboltaleik og eins og staðan er í dag myndu þeir detta inn í úrslitakeppnina og mæta Chicago. En það er allt of snemt að fara að leika sér með jafn fjarlæga hluti eins og þessa. Brooklyn varð fyrir barðinu á Bobcats 95-91 þar sem Kemba Walker var maðurinn hjá Bobcats með 31 stig. Hjá Brooklyn kom Andray Blatche með 25 stig af bekknum en alls komu 52 stig af bekknum hjá Brooklyn á móti 49 frá byrjunarliðinu.
Brooklyn hefur nú tapað 8 leikjum það sem af er vetri og er á botni Atlantshafs riðilsins. Blessunarlega fyrir þá, þá eru nágrannar þeirra í Madison Square Garden ekkert að bjóða aðdáendum upp á neina stjörnustæla og verma botninn með Brooklyn.
Það fer að vera spurning hverjir það verða sem koma til með að stöðva Portland Trailblazers en þeir eru á miklu skriði og unnu sinn áttunda leik í nótt þegar þeir heimsóttu Milwaukee Bucks, 91-82. LaMarcus Aldridge var stigahæstur hjá Portland með 21 og 7 fráköst en hjá Milwaukee var Luke Ridnour með 13 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar
Úrslit næturinnar:
FINAL
7:00 PM ET
BKN
91
CHA
95
W
| Q1 | Q2 | Q3 | Q4 | F | |
|---|---|---|---|---|---|
| BKN | 29 | 21 | 20 | 21 | 91 |
|
|
|
|
|
||
| CHA | 30 | 23 | 30 | 12 | 95 |
| BKN | CHA | |||
|---|---|---|---|---|
| P | Blatche | 25 | Walker | 31 |
| R | Garnett | 8 | Adrien | 10 |
| A | Livingston | 5 | McRoberts | 5 |
| Game Stat | FG% |
|
|---|






