Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var nokkuð hress eftir stórsigur sinna manna á ÍR í kvöld. Stjarnan lék við hvern sinn fingur og stigu nokkrir ungir leikmenn upp þegar tækifærið á auknum mínútum gafst. Eins og margir þjálfarar tók hann þó ekki alveg í það að leikurinn hafi verið léttur.
“Kannski léttur í þeim skilningi að taflan segir 89-61, en hann byrjar núll núll og strákarnir kannski gerðu hann léttan með frábæru efforti og frábærri vörn. Það voru 14 stig í hálfleik og svo bara gáfum við í í byrjun seinni hálfleik, skorum held ég 10 fyrstu stigin í seinni hálfleik. Þá er þetta náttúrulega ekki leikur lengur, þá er þetta búið og kannski formsatriði að klára þetta. Ég er ánægður með andann í liðinu, allt annað heldur en þegar við vorum agalega daufur í Grindavík um daginn. Núna voru menn kallandi og hjálpandi hvor öðrum í 40 mínútur, það gleður mig”.
Ætli menn í Garðabænum skynji kannski stíganda í leik sinna manna ?
“Ég ætla rétt að vona það, þetta er erfitt, við erum fámennir. Núna vorum við 9 á skýrslu í dag og þá bara þjappa menn sér saman”.
Jón Sverrisson gekk til liðs við Stjörnuna fyrir tímabilið en hefur ekki ennþá getað spilað vegna meiðsla. Teitur sagði Jón vera á svipuðum batavegi og Kobe nokkur Bryant en þeir hafi báðir tekið sínar fyrstu æfingar með liðinu í vikunni.
“Hann var að byrja loksins í contact í vikunni, hann og Kobe, þannig að við erum að vona að hann spili kannski seinasta leikinn í desember.
Hann er stór og sterkur strákur, getur skotið, Jón í sínu besta, tekur kannski tíma að komast í þann gírinn, hann hjálpar okkur heilmikið. Við erum að henda strákum sem eru bara 17 18 ára inná, sjötti maðurinn okkar, það er 17 ára í byrjunarliðinu, fyrsti maðurinn af bekknum og unglingaflokkurinn var að sjá um þetta í restina. En þeir þurfa að fá að spila og gera mistök. Við náðum að rúlla þessu nokkuð vel, það voru ekki bara fyrstu fimm sem stóðu sig vel í dag, það voru allir klárir á bekknum og þá gerast góðir hlutir”.
ÍR náði að setja 5 fyrstu stig í fjórða leikhluta á örskömmum tíma en það truflaði Teit ekki mikið.
“Nei, þá voru menn búnir að fá góða hvíld hjá mér, stóru strákarnir sátu á bekknum, Fannar og Junior, þannig að ég hafði ekki þannig lagað áhyggjur. Mér sýndist Marvin hafa áhyggjur, eini maðurinn í húsinu”.
mynd úr safni – [email protected]




