HomeFréttirRose meiddur

Rose meiddur

Stærsta fréttin úr NBA boltanum þessa nóttina er að Derrick Rose, Chicago Bulls, meiddist á hné og þurfti að yfirgefa völlinn. Að þessu sinni var það hægra hnéð en Rose fer í myndatöku í dag til að sjá hvers eðlis meiðslin eru og kemur þá í ljós hvort hann þurfi að taka langan tíma í að ná sér á ný. Það yrði sorglegt fyrir Bulls sem og áhugamenn um NBA ef Rose þyrfti frá að hverfa því það er einfaldlega gaman að fylgjast með þessum snjalla leikmanni.
Höldum áfram hjá Bulls en þeir mættu sjóðandi heitum Portland Trailblazerum og hafði Portland betur 98-95. Var þetta níundi sigur leikur Portland í röð. Wesley Matthews var drjúgur með 28 stig og Damian Lillard skilaði af sér 20 stigum og 6 stoðsendingum. Robin Lopez var einnig drjúgur fyrir Portland en hann setti niður 13 stig og tók 16 fráköst. Allir byrjunarliðsleikmenn Portland skiluðu 10 stigum eða meira.
Derrick Rose var kominn með 20 stig og 5 fráköst þegar hann þurfti frá að hverfa og var hann stighæstur Bulls manna. Carlos Boozer skilaði af sér 16 stigum og 7 fráköstum og Lual Deng setti niður 15 stig og tók 14 fráköst.

San Antonio Spurs eru líka á miklu skriði þessa dagana og hafa unnið níu leiki líkt og Portland. Í nótt sigruðu þeir Memphis, 102-86, og var Tony Parker stighæstur með 20 stig og 5 stoðsendingar hjá Spurs og hjá Memphis var Mike Conley með 28 stig.

Önnur úrslit.

FINAL
 
7:00 PM ET
PHX

Phoenix Suns

98
W
CHA

Charlotte Bobcats

91
  Q1 Q2 Q3 Q4 F
PHX 27 28 19 24 98
 
 
 
 
 
CHA 24 20 19 28 91
  PHX CHA
P Frye 20 Henderson 17
R Plumlee 11 Zeller 9
A Dragic 8 Walker 6
 
Highlights
Game Stat
Fréttir
- Auglýsing -