Haukar og Keflavík mættust í kvöld í Schenkerhöllinni í einstaklega stigalágum körfuboltaleik þar sem að Keflavík fór með 63-68 sigur af hólmi eftir að Haukum rétt mistókst að stela sigrinum af Keflvíkingum sem voru nánast búnir að tryggja sér leikinn um miðjan þriðja leikhlutann.
Haukar voru skelfilega lélegir í fyrrihálfleik og skoruðu aðeins 29 stig. Haukur Óskarsson var sá eini sem var með einhverri rænu í sóknarleik Haukamanna og var hann með 32 stig í heildina þar sem að hann setti niður 9 þrista af 20 skottilraunum, eða einum færri þriggjastigaskot en allt Keflavíkurliðið.
Keflavík voru síðan sjálfir alveg hræðilegir seinustu 15 mínútur leiksins og skoruðu aðeins 12 stig. Þeir hristu hinsvegar af sér slenið og sýndu hina frægu Keflavíkurseiglu þegar það skipti mestu máli, eða á seinustu 30 sekúndunum, og skoru 4 stig í röð til að tryggja sér sigurinn.
Haukar voru skelfilega lélegir í fyrrihálfleik og skoruðu aðeins 29 stig. Haukur Óskarsson var sá eini sem var með einhverri rænu í sóknarleik Haukamanna og var hann með 32 stig í heildina þar sem að hann setti niður 9 þrista af 20 skottilraunum, eða einum færri þriggjastigaskot en allt Keflavíkurliðið.
Keflavík voru síðan sjálfir alveg hræðilegir seinustu 15 mínútur leiksins og skoruðu aðeins 12 stig. Þeir hristu hinsvegar af sér slenið og sýndu hina frægu Keflavíkurseiglu þegar það skipti mestu máli, eða á seinustu 30 sekúndunum, og skoru 4 stig í röð til að tryggja sér sigurinn.
Keflvíkingar létu Hauka finna vel fyrir sér í fyrsta leikhlutanum og voru töluvert betri og leiddu 12-21 þegar minna en mínúta var eftir af leikhlutanum. Þá áttu Haukar hins vegar góða rispu þar sem þeir skoruðu og Keflvíkingar fengu dæmda á sig villu á atvik frá bolta þannig Haukar fengu boltann aftur og þá smellti Haukur Óskarson þrist í andlitið á þeim. Staðan var þá orðin 17-21 og Haukar litu út fyrir að vera búnir að koma sér inn í leikinn.
Keflavík byrjuðu annan leikhluta á tveimur þristum og komu sér í tíustiga forustu, 17-27. Haukur svaraði að bragði með einu sjálfur. Eftir það tók við þó nokkur varnarbarningur þar sem báðum liðum gekk illa að skora þangað til Keflavík smellti niður enn einum þristinum sem var upphafið af 7-0 kafla hjá þeim. Jafnfræði varð svo með liðunum næstu mínúturnar þangað til að Haukur setti tvo þrista á stuttum tíma. Andy Johnson var þá búinn að fá nóg og tók leikhlé með rétt tæpa tvær og hálfar mínútur eftir af leikhlutanum.
Keflavík mættu einbeittari til leiks að loknu leikhléinu og tókst að stöðva sóknir Hauka þrátt fyrir að takast ekki sjálfum að bæta mikið við af stigum. Þeir áttu þó seinustu körfu fyrri hálfleiks og leiddu 29-43.
Í byrjun seinni hálfleiks þá gekk Haukum ekkert gegn stífri og vel skipulagðri svæðisvörn Keflvíkinga og töpuðu þeir mikið af boltum. Einnig var vörnin hjá þeim í ruglinu og Keflvíkingar hirtu hvert sóknarfrákastið á fætur öðru. Eftir þessa afleita spilamennsku fór loks að sjá til sólar hjá Haukum og skoruðu þeir 11 stig til að enda leikhlutann og laga stöðuna í 46-58.
Haukar voru ekki tilbúnir að gefast upp og hófu fjórða leikhlutann á körfu og góðu varnarstoppi. Terrence Watson toppaði svo glæsilega byrjun með iðnaðartroði. Terrance var síðan aftur að og minnkaði muninn niður í 6 stig, 52-58. Haukur Óskarsson smellti því næst niður baneitruðum þrist og minnkaði muninn í aðeins 2 stig, 58-60. Darrel Keith Lewis og Michael Craion sáu svo til þess að Keflavík jók muninn í 58-63. Terrence fékk stuttu síðar dæmda á sig sína 5. villu og þurfti að setjast á tréverkið. Haukar létu það ekki á sig fá og héldu áfram að spila góða vörn og hirða varnarfráköst. Haukur Óskarsson fór tvívegis á línuna á stuttum tíma og setti 3 af 4 niður og munurinn kominn niður í 1 stig, 63-64. Nær komust þó Haukar ekki og Keflavík tókst að halda yfirvegun og koma í veg fyrir að Haukum tækist að stela þessum leik, sem leit út fyrir að vera lokið um miðbik þriðja leikhluta, og lönduðu 63-68 sigri.
Mynd – Axel Finnur Gylfason/ Arnar Freyr Jónsson setti gríðarlega mikilvægt sniðskot við enda leiks til að ísa leikinn fyrir KefCity




