Njarðvík bauð Haukum í heimsókn í 16. umferð Dominosdeildar kvenna í kvöld og bauð þeim einnig uppá frekar auðveldan sigur, en leikurinn fór 64-86 fyrir Hauka.
Leikurinn var gríðarlega hraður í byrjun og var staðan 10-10 eftir aðeins 3 mínútur. Þar fór Dagbjört Samúelsdóttir mikinn og skoraði hún 6 stig á 100% skotnýtingu. Hún átti eftir að gera töluvert betur en það þar sem að hún endaði leikinn með 14 stig og það án þess að brenna af skoti. Eftir það hægðist á leiknum enda varnir beggja liða farnar að þétta sig.
Athyglisvert var að þegar leikhlutinn var hálfnaður var staðan 11-17 fyrir Hauka en Lele Hardy var án stiga. Það breyttist hins vegar fljótt þar sem að hún skellti niður 5 stigum á stuttum tíma og kom Haukum 11 stigum yfir.
Erna Hákonardóttir smellti þá niður þrist sem kveikti í Njarðvík og Nikitta Gartrell skoraði 5 stig í næstu tveimur sóknum sem minnkaði muninn í 3 stig, eða 19-22.
Erna Hákonardóttir smellti þá niður þrist sem kveikti í Njarðvík og Nikitta Gartrell skoraði 5 stig í næstu tveimur sóknum sem minnkaði muninn í 3 stig, eða 19-22.
Þrátt fyrir að hafa endað fyrsta leikhlutann sterkt þá voru Njarðvíkurstúlkur alveg út á þekju í upphafi annars leikhluta og Haukar skoruðu 10-0 á fyrstu fjóru mínútunum áður en Njarðvík komust aftur á blað. Haukar héldu áfram að vera betri aðilinn í leiknum og juku við forskot sitt. Staðan í hálfleik var 33-48.
Njarðvík komu hins vegar vel stemdar til leiks í seinni hálfleik og var vörnin þeirra gríðarlega sterk sem þvingaði Hauka í marga tapaða bolta. Einnig fóru þær að skjóta betur en þær höfðu gert framan af leik. Gartrell var góð í leikhlutanum og skoraði 9 stig, en hún átti annars dapran skot dag þrátt fyrir góðan leik yfir heildina, og Sara Dögg Margeirsdóttir setti niður 2 góða þrista í leikhlutanum. Njarðvík vann leikhlutann 19-14 og minnkuðu muninn í 52-62.
Njarðvíkurtúlkur reyndu að halda dampi frá þriðja leikhluta en Haukar voru einfaldlega númeri of stórar fyrir þær og héldu áfram að þjarma á þeim og unnu auðvelda og sannfærandi sigur.
Mynd – [email protected]/




