KR tóku á móti Haukum í kvöld í 18. umferð Dominosdeildar kvenna í DHL höllinni. KR eru búnar að vera upp og niður í frammistöðu sinni í vetur og áttu þær ekki möguleika gegn sjóðheitum Haukum í kvöld sem slátraði KR 52-86.
Haukar hafa byrjað árið alveg gríðarlega vel og unnið leikina sína með 26,75 stiga mun að meðaltali. Þær eru væntanlega ekki eftirsóknarverður andstæðingur þessa daganna.
Haukar hafa byrjað árið alveg gríðarlega vel og unnið leikina sína með 26,75 stiga mun að meðaltali. Þær eru væntanlega ekki eftirsóknarverður andstæðingur þessa daganna.
Liðin hófu leikinn á því að skiptast vingjarnlega á körfum en svo settu Lele Hardy og Lovísa Björt Henningsdóttir sitt hvoran þristinn ásamt því að Gunnhildur Gunnarsdóttir krossaði Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur snyrtilega og kom Haukum í 4-11. KR skoruðu tvær körfur í röð og nálguðust Haukanna í 8-11 en eftir það höfðu Haukarnir yfirhöndina og Hardy setti magnaðan þrist með 7 sekúndur eftir af leikhlutanum eftir að hafa dripplað klukkuna niður um rúmar 10 sekúndur og staðan þá orðin 12-22.
Ljósi punktur KR í leikhlutanum var Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir sem spilað fína vörn og var með 2 varða bolta.
Ljósi punktur KR í leikhlutanum var Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir sem spilað fína vörn og var með 2 varða bolta.
Yngvi Páll Gunnlaugsson fannst dómararnir missa af of mörgum atriðum gegn sínu liði í öðrum leikhlutanum og vó þar þyngst þegar Ebone Henry virtist hafa fengið högg á hálsinn en ekkert var dæmt. Yngvi tók leikhlé stuttu eftir það brot og lét dómarana heyra vel í sér.
Björg Guðrún Einarsdóttir fíflaði Lovísu þegar hún krossaði hana ekki einu sinni heldur tvisvar og skyldi hana eftir í rykinu og skoraði úr auðveldu sniðskoti. KRstúlkur spiluðu betri vörn en í fyrsta leikhluta en Haukum tókst þó að skora fleiri stig í þessum leikhluta en það var af því að þær voru að hitta mjög vel, og þar sérstaklega fyrir utan þriggjastigalínuna og unnu Haukar leikhlutann 12-26 og staðan því 24-48 í hálfleik.
KR byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og yfirspilaði Hauka 10-4 á fyrstu þremur mínútunum þar sem að Björg lagði línuna með 5 stigum og Sigrún fylgdi eftir með þrist. KR tókst ekki skora næstu tæpu fimm mínúturnar en þær voru að spila fína vörn og héldu ágætlega aftur af Haukum þó að þær skoruðu 8 stig á þær á þeim kafla. Haukar héldu áfram að skjóta rosalega vel og unnu leikhlutann með fjórum stigum af þeim sökum, 16-20.
Fjórði leikhlutinn var ekki upp á marga fiska enda leikurinn löngu ráðinn en Sigrúnu tókst þó að hefna sín á Gunnhildi og krossaði hana skemmtilega og lagði boltann í körfuna.
Ebone Henry var heillum horfin í leiknum og var ekki sjáanleg eftir fyrsta leikhlutann. Spurning hvort að höggið sem að hún fékk í öðrum leikhluta hafi meitt hana það mikið að hún hefi ekki getað beitt sér sem skyldi. Björg og Sigrún voru ljósu punktar KRinga og börðust af hörku nánast allan leikinn.
Hjá Haukum átti Hardy sinn hefðbundna risaleik og komst Bjarni Magnússon upp með það að nota hana í aðeins 26 mínútur í kvöld. Margrét Rósa Hálfdánardóttir átti frábæran leik og var hún með 18 stig og setti niður 3 af 4 þriggjastigaskotum sínum (tölfræðin segir 5 skot en við skulum ekki telja með þristinn sem hún tók er flautann gall við endalok þriðjaleikhluta og hún lét hann fljúga frá sínum vallarhelming). Auður Íris Ólafsdóttir átti líka flottan leik og skoraði hún 10 stig, tók 6 fráköst og átti 5 stoðsendingar.
Mynd/ Gunnhildur Gunnarsdóttir átti góðan leik í kvöld




