Haukar fengu Hamar í heimsókn í 21. umferð Dominosdeildar kvenna í kvöld þar sem að Haukar fóru með 81-72 sigur af hólmi í leik sem átti eftir að verða miklu jafnari og meira spennandi en hann gaf til kynna í upphafi.
Lele Hardy byrjaði leikinn af krafti og skoraði hún fyrstu 5 stig Hauka og bætti við 4 fráköstum á fyrstu tveimur mínútum leiksins. Hamri gekk ekkert að skora og var staðan 10-3 við miðbik leikhlutans. Hamar skoruðu aðeins eina körfu á fyrstu 7 mínútum leiksins og þurftu að bíða eftir vítaskoti til að bæta loksins á töfluna. Eftir það fóru þær þó að eiga ágætissóknir og bættu við nokkrum stigum til viðbótar en Haukar voru búnar að vera með algjöra yfirburði í leiknum og staðan 23-10 að loknum fyrsta leikhluta þar sem að Hardy var aðeins tveimur fráköstum frá því að vera strax komin með tvöfalda tvennu.
Íris Ásgeirsdóttir datt í smá stuð og smellti niður tveimur þristum í röð til að koma Hamarsstúlkum á blað í öðrum leikhlutanum. Það kveikti smá neista og var allt annað að sjá spilamennsku Hamars. Liðin skiptust á körfum og voru Haukastúlkur heldur til afslappaðar eftir yfirburðina í fyrsta leikhluta. Hamar voru ekki búnar að vera skjóta vel en þær voru aðeins með 22% skotnýtingu og 24% nýtingu frá þriggja, þar sem að þær voru búnar að fleygja 17 slíkum í loftið. Hamar enduðu þó leikhlutann af krafti þökk sé góðri spilamennsku hjá Chelsie Alexa Schweers, Sóleyjar Guðgeirsdóttur og Katrínar Eikar Össurardóttur sem skoraði ásamt því að fá vítaskot að auki eftir gott sóknarfrákast og minnkuðu þær muninn í 6 stig, 37-31. Hardy átti þó tilþrif leikhlutans þar sem að hún keyrði upp völlinn í lokasókn Hauka þegar aðeins 4.3 sekúndur voru til hálfleiks og lét einnar handar þrist fljúga á milli miðlínunnar og þriggjastiga línurnar þannig að Haukar leiddu með 9 stigum í hálfleik, 40-31.
Eftir að Haukar höfðu skorað tvö fyrstu stig seinni hálfleiks þá bombaði Schweers tveimur þristum niður fyrir Hamar og minnkaði muninn niður í 5 stig, 42-37. Hamarsstúlkur því farnar að gera sig ansi líklegar til þess að verða erfiðar viðureignar. Íris Sverrisdóttir var ekki búin að vera inná í nema 6 sekúndur þegar hún smellti niður þrist sem að hleypti Haukum af stað í smá áhlaup þar sem þær komu sér aftur 12 stigum yfir. Hallgrímur Brynjólfsson, þjálfari Hamars, tók þá leikhlé og breytti yfir í svæðisvörn.
Hamar fór ekki strax í gang eftir leikhléið en stuttu seinna stóð net Hauka í björtu báli þar sem að Hamarsstúlkur settu á svið skotsýningu þar sem þær smelltu niður 5 þristum á þremur mínútum, Íris og Fanney Lind Guðmundsdóttir með tvo hvor og Schweers með stakan. Að auki varði Marín Laufey Davíðsdóttir skot hjá Hardy til að kóróna frábæran leikhluta hjá Hamri sem þær unnu verðskuldað 29-23 og því aðeins þremur stigum undir, 63-60, til að hefja fjórða.
Fanney kom Hamri yfir í fyrsta skiptið í leiknum í stöðunni 65-66 eftir að hafa sett niður þrist en Dagbjört Samúelsdóttir svaraði strax í næstu sókn fyrir Hauka með eigin þrist. Liðin skiptust svo á körfum næstu mínúturnar áður en að Margrét Rósa Hálfdanardóttir skoraði nokkrar gríðarlega mikilvægar körfur fyrir Hauka og kom þeim í 77-72. Haukar bættu síðan við fjórum stigum af vítalínunni þar sem brotið var á Hardy og Lovísu Björt Henningsdóttur, en Fanney fékk dæmda á sig óíþróttamannslegavillu fyrir að stíga Lovísu full hressilega út að loknum vítaskotum Hardy. Haukum tókst því að halda sigrinum sem leit út fyrir að verða þeim nokkuð auðveldur eftir fyrsta leikhlutann en Hamar spiluðu mjög vel og neituðu að gefast upp auðveldlega.




