Keflavík tóku á móti Haukum í 22. umferð Dominosdeildar kvenna í kvöld þar sem að Keflvíkingar freistuðu þess að bæta upp fyrir að hafa dottið út úr Poweradebikarnum í undanúrslitum gegn Haukum ásamt því að stöðva þriggja langa taphrinu í deildinni. Þeim varð hins vegar ekki að ósk sinni og fjórða tapið í röð staðreynd er þær féllu fyrir Haukum 60-61. Leikurinn var hnífjafn allan tíman þar sem staðan var sjaldan meiri en þrjú stig.
Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og skiptust þau á körfum. Keflavík átti svo góða rispu um miðjan leikhlutann og komust þær í 10-7 eftir að hafa verið 5-7 undir. Á þeim tímapunkti í leiknum voru Keflavík að frákasta mun betur eða 9 fráköst gegn 3. Seinni hluti leikhlutans komu Haukar hins vegar sterkar tilbaka og kláruðu leikhlutann á 9-3 áhlaupi ásamt því að laga frákastamuninn í 15-14. Staðan 13-16 að loknum fyrsta.
Bæði lið voru að hitta mjög illa og eftir nokkrar mínútur í öðrum leikhluta, í stöðunni 15-16, var Keflavík með aðeins 14% skotnýtingu innan þriggjastigalínunnar og Haukar með ögn skárri 27% nýtungu. Keflavík byrjuðu leikhlutan aðeins betur en Haukar en annars var mikið jafnræði með liðunum og einnig á stigaskori leikmanna beggja liða. 13 leikmenn fóru á blað í fyrri hálfleik og engin með fleiri en 9 stig. Staðan í hálfleik 31-35.
Þriðji leikhlutinn var lítið fyrir augað og einkenndist af mikilli baráttu og lágu stigaskori. Leikhlutinn fór 13-13 og staðan því 44-48 í lok hans. Lele Hardy meiddist á hné í lokasókn Hauka þegar hún tók skot er leiktíminn rann út og þurfti hún að fá aðhlynningu í smá stund á milli leikhlutanna.
Bríet Sif Hinriksdóttir byrjaði fjórða leikhlutann á þrist og hóf með honum 7-0 kafla fyrir Keflavík. Jóhanna Björk Sveinsdóttir fékk síðan sína fimmtu villu og útlitið því að verða dökkt fyrir Hauka þar sem að Hardy var enn utanvallar og Lovísa Björt Henningsdóttir einnig í bullandi villuvandræðum. Hardy kom hinsvegar inn á stuttu síðar og virtist allt vera í himna lagi hjá henni. Leikurinn var hnífjafn en þá setti Lovísa þrist og við það kom mikill viðsnúningur. Haukar læstu vörninni þar sem að Keflavík misstu boltann í næstu sókn og svo þegar 2 mínútur voru til leiksloka fiskaði Gunnhildur Gunnarsdóttir mikilvægan ruðning á Bryndísi Guðmundsdóttur. Haukar voru yfir 53-56 þegar aðeins 1 mínúta var eftir en Johnson minnkaði hann í 55-56. Haukar áttu síðan frekar lélega sókn en voru heppnar og náðu sóknarfrákastinu. Keflavík fóru að brjóta til að koma Haukum í bónus. Þegar Haukar voru komnar í bónus reyndi Sara Rún Hinriksdóttir að brjóta á Hardy til að senda hana á línuna en Hardy dripplaði bókstaflega hringi í kringum hana og tók það Söru 10 sekúndur að ná að brjóta á henni. Hardy setti bæði vítaskotin niður og staðan 58-61. Keflavík höfðu hinsvegar 14 sekúndur til að ná að jafna og eftir smá darraðadans náði Johnson skoti í þann mund sem leiktíminn rann út og skoraði glæsilega. Þá tók við smá óvissuástand þar sem að útidómarinn gaf merki um þriggjastigakörfu, og þar með framlengingu, en dómarinn undir körfunni taldi þetta hafa verið tveggjastiga. Dómaranir ræddu málin sín á milli og breyttu dómnum úr þriggjastiga yfir í tveggjastiga og þar með Haukum sigurinn 60-61. Eftir smá mótmæli Keflavíkur ákváðu þeir að ráðfæra sig við myndbandsupptöku sem var á staðnum. Eftir að hafa skoðan hana létu þeir tveggjastiga dóminn standa.
Myndbandsupptakan af skotinu:
Undirritaður var með mjög gott sjónarhorn af skotinu úr pöllunum og sjá greinilega tærnar á Johnson vera vel fyrir innan línuna þegar hún tók skotið.
/Mynd – Úr viðureign liðanna í undanúrslitum Poweradebikarsins