Haukar fengu Njarðvík í heimsókn í kvöld í Schenkerhöllina þar sem Haukar fóru með 71-66 sigur af hólmi en ég veit hreinlega ekki hvort að ég eigi að segja að Haukar hafi stolið sigrinum, klárað leikinn á þrautsegjunni eða að Njarðvík hafi gefið frá sér sigur sem þær voru með í höndunum.
Njarðvík var nefnilega töluvert betri aðilinn í fyrstu þremur leikhlutunum þó að Haukar hafi náð einni eða tveimur góðum rispum. Önnur af þessum góðu rispum var í lok þriðja leikhluta þegar Margrét Rósa Hálfdanardóttir skoraði 5 mikilvæg stig fyrir Hauka sem manni fannst að gæti hugsanlega gefið Haukum von en fannst það þó ekki líklegt miðað við gang leiksins hingað til. Það þyrfti nánast allt að ganga Haukum í haginn og Njarðvík í óhag.
Nema hvað að það var nákvæmlega það sem að gerðist. Haukar skoruðu meira í fjórða leikhlutanum heldur en í öllum fyrri hálfleik og það gjörsamlega slökknaði á Salbjörgu Sævarsdóttir, Guðlaugu Björt Júlíusdóttur og Nikitta Gartrell sem höfðu verið sterkustu leikmenn Njarðvíkur.
Leikurinn byrjaði nokkuð jafn en bæði lið áttu í erfiðleikum með að skora. Eftir að Haukar hefðu komist yfir í stöðunni 9-8 þá átti Njarðvík 10-0 kafla. Njarðvík tókst svo ekki að skora á seinustu þremur mínútum leikhlutans og Haukar löguðu stöðuna í 13-18.
Haukar fóru að sækja aðeins á Njarðvík í upphafi annars leikhluta og þegar þær voru farnar að gera sig líklegar til að koma sér inn í leikinn þá setti Andrea Björt Ólafsdóttir mikilvægan þrist fyrir Njarvík og kom þeim í 20-28. Eftir það gekk Haukum ekkert að setja boltan ofan í körfuna og Njarðvík sterkari aðilinn fram að hálfleik þar sem þær leiddu 27-35.
Njarðvík kom sér snemma 15 stigum yfir, 30-45, í þriðja leikhluta og virtust þær vera á góðri leið með að ná þægilegum sigri þar sem að Haukar voru að spila einstaklega illa á þessu tímabili þar sem fátt gekk upp. Þá tók Margrét Rósa Hálfdanardóttir við sér og skoraði hún 5 stig undir lok leikhlutans og minnkaði munninn í 43-52.
Liðin skiptust á körfum við upphaf leikhlutans en skömmu síðar setti Dagbjört Samúelsdóttir niður þrist fyrir Hauka sem átti aldeilis eftir að koma af stað runu af þriggjastigaskotum. Íris Sverrisdóttir splæsti í tvo og minnkaði muninn í 53-56. Haukar laumuðu svo inn einu sniðskoti áður en Ína María Einarsdóttir svarði þessu áhlaupi Hauka með þrist og kom Njarðvík í 55-59 en Margrét Rósa var fljót að minnka muninn aftur í 1 stig með þrist. Það voru því komnar 5 þriggjastiga körfur í seinustu 6 skoruðu körfum og liðin voru ekki hætt. Lele Hardy kom Haukum yfir í 60-59, í fyrsta skiptið síðan í stöðunni 9-8, þegar hún skoraði úr sniðskoti. Liðin skoruðu svo sitthvor tvo stigin áður en næsta hrina af þriggjastigaskotum kom en liðin settu fjóra þrista í röð. Fyrst Jóhanna Björk Sveinsdóttir fyrir Hauka og svo Ína María fyrir Njarðvík svo staðan var 65-64 með rétt rúma mínútu til leiksloka áður en Hardy ísaði leikinn fyrir Hauka með tveim þristum í röð ásamt því að hafa varið þriggjastigaskottilraun hjá Ernu Hákonardóttur.
/Ljósmynd – Jóhanna Björk Sveinsdóttir átti mjög góðan fjórða leikhluta




