HomeFréttirKR skelltu Haukum niður á jörðina

KR skelltu Haukum niður á jörðina

KR mættu blómi færandi nýkrýndum bikarmeisturum Hauka í Schenkerhöllina í kvöld. Að hafa verið sýndur svona mikill virðingarvottur og vitandi það að KRstúlkur væru án þjálfara síns, Yngva Gunnlaugssonar sem fylgdist með úr stúkunni í kvöld sökum leikbanns, virtust Haukastúlkur hafa haldið að leikurinn yrði bara formsatriði fyrir þær.
Svo var nú aldeilis ekki og fengu Haukar vænan skell í kvöld þar sem KR unnu sannfærandi 74-91 sigur.
 
KRingar byrjuðu með látum og komust í 0-5 áður en Haukar náðu að átta sig á því að leikurinn væri byrjaður. Eftir að hafa vaknað áttu Haukar 8-0 kafla. Það sem eftir lifði leikhlutans skiptust liðin á körfum og forystu. Það var svo KR sem hafði yfirhöndina að leikhlutanum loknum, 19-21.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var allt í öllu í sóknarleik KRstúlkna og var hún með 14 stig eftir fyrsta leikhluta og Björg Guðrún Einarsdóttir var frákastahæst allra leikmanna með 5 fráköst.
 
Aftur byrjuðu KR með látum og yfirspiluðu þær Hauka 12-2 á fyrstu tveimur og hálfri mínútunni þar sem þær settu meðal annars niður tvo þrista ásamt því að þröngva Haukum í hvern tapaðann boltann á eftir öðrum. Bjarni Magnússon var brjálaður yfir spilamennsku leikmanna sinna og las hann duglega yfir þeim eftir að hafa tekið leikhlé. Haukar skiptu yfir í svæðisvörn en það hafði lítil áhrif á KR sem héldu áfram að skora á Hauka eins og þeim sýndist. Haukar fóru þó að setja niður nokkur skot eftir reiðilestur Bjarna en það dugði skammt þar sem KR unnu leikhlutann með yfirburðum 12-31 og því með afgerandi 31-52 forystu í hálfleik.
Sigrún hélt áfram að vera sjóðandi heit og var hún með 25 stig í hálfleik þar sem hún setti 6 af 6 skotum sínum innan þriggjastigalínunnar og 3 af 4 skotum sínum fyrir utan hana og þess ber að geta að þetta eina misnotaða skot var flautuþristur frá miðju er fyrri hálfleikurinn rann út!
 
Haukar komu sterkar inn í seinni hálfleikinn þar sem að þær byrjuðu á 12-4 áhlaupi þar sem Auður Íris Ólafsdóttir smellti niður tveimur þristum og Lele Hardy einum áður en KR tóku leikhlé til að reyna stoppa ágang Hauka. Hardy tókst að minnka muninn niður í 10 stig í stöðunni 46-56 áður en KR sögðu stopp og juku muninn í 17 stig, 47-64. Leikhlutinn endaði svo í 54-67.
 
Fjórði leikhlutinn einkenndist af miklum barnin framan af og fáum körfum en svo komu KR með góða rispu og komust í 57-76. Við það var sigurinn eiginlega kominn hjá KRingum og ekki hjálpaði það Haukum að Hardy hafi fengið sína 5. villu þegar fjórar og hálf mínúta voru eftir af leiknum. Brotið var á Helgu Einarsdóttur í skottilraun svo hún datt og fékk hún að vitaskuld tvö vítaskot en hún rauk útaf vellinum og Sigrún kom inná í hennar stað og tók vítaskotin fyrir hana. Helga var svo fljót að koma sér útaf að smá ruglingur varð hjá áhorfendum sem voru ekki sáttir með að Sigrún fengi að taka vítin fyrir Helgu. En Helga hafði fengið slæman skurð á hnéð sem blæddi mikið úr og varð hún því að fara útaf og mátti ekki koma inn á fyrr en búið væri að ná tökum á blæðingunni. Haukar reyndu hvað þær gátu en KR létu ekki bugast og héldu þær forystu sinni og unnu því sannfærandi 74-91.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -