HomeFréttirIlgauskas upp í rjáfur

Ilgauskas upp í rjáfur

Á laugardaginn næsta verður treyja Zydrunas Ilgauskas hengd upp í rjáfur í Quicken Loans Arena í Cleveland og hefur sjálfur Lebron James það í hyggju að mæta og vera viðstaddur þegar númer Ilgauskas verður híft upp.
 
Samkvæmt miðlum vestanhafs mun James ekki kom til með að ávarpa athöfnina en langaði að vera þarna til að styðja við bakið á vini sínum. Ilgauskas og James voru liðsfélagar hjá Cleveland þau sjö ár sem James var á mála hjá liðinu og svo eitt ár hjá Miami þangað til að Ilgauskas lagði skóna á hilluna árið 2011.
 
James segist vera í reglulegum samskiptum við Ilgauskas og hafi litið upp til hans þegar hann kom til Cleveland. Í raun hafi það verið Ilgauskas sem sýndi James hvernig á að haga sér sem atvinnumaður bæði innan vallar sem utan.
 
Spennandi verður að sjá hvernig stuðningsmenn Cleveland taka James enda eins og alþjóð veit var mikill hamagangur í kringum brottför hans til Miami hér um árið.
 
Fréttir
- Auglýsing -