Heil umferð er á dagskrá Domino‘s deildar kvenna í kvöld og beinast öll spjót að leik Vals og Hamars sem eru í harðri samkeppni um sæti í úrslitakeppninni. Með sigri tryggja Valsstúlkur sig inn sem fjórða liðið í úrslitakeppnina en Hlíðarendastúlkur eru tveimur stigum á undan Hamri í fjórða sæti.
Allir leikirnir hefjast kl. 19:15
Keflavík – KR
Grindavík – Njarðvík
Valur – Hamar
Haukar – Snæfell
Tveir leikir eru svo á dagskrá í bikarkeppni yngriflokka en þá mætast KR og Grindavík/Þór í 11. flokki karla kl. 19:30 og Njarðvík og Haukar mætast í drengjaflokki kl. 20:00.
Leikur KR gegn Grindaví/Þór í 11. flokki karla verður í beinni útsendingu á KRTV.
Mynd/ Guðbjörg Sverrisdóttir og félagar eiga erfiðan leik fyrir höndum – JBÓ




