Powerade-bikarúrslitaleikir allra flokka fara fram helgina 20.-22. febrúar í Laugardalshöll. Í fyrsta sinn verða leikir yngri flokka haldnir hátíðlegir sömu helgi og úrslitaleikir meistaraflokka og fara þeir fram við sömu aðstæður og umgjörð og úrslitaleikir meistaraflokkana. www.kki.is greinir frá.
RÚV sýnir beint frá úrslitaleikjum meistaraflokka kvenna og karla á laugardeginum og SportTV.is mun sýna beint frá öllum öðrum leikjum helgarinnar. Karfan.is mun svo að sjálfsögðu fylgjast grannt með hverjum einasta leik þessa helgina.
Það er því mikil hátíð framundan hjá íslensku körfuknattleikshreyfingunni og skorum við á körfuknattleiksaðdáendur að mæta á leikina og sjá framtíðarleikmenn landsins eigast við í úrslitaleikjum sinna flokka. Í gegnum tíðina hafa þessir leikir verið frábær skemmtun og oft mikil spenna og flott tilþrif í boði fyrir áhorfendur.
Poweradebikarúrslit 2015 · Leikjadagskrá helgarinnar
Föstudagur 20. febrúar
Kl. 18:30 10. flokkur drengja
Kl. 20:30 10. flokkur stúlkna
Laugardagur 21. febrúar
Kl. 10:00 11. flokkur drengja
Kl. 13:30 Meistaraflokkur kvenna
Kl. 16:00 Meistaraflokkur karla
Sunnudagur 22. febrúar
Kl. 10:00 9. flokkur stúlkna
Kl. 12:00 9. flokkur drengja
Kl. 14:00 Stúlknaflokkur
Kl. 16:00 Drengjaflokkur
Kl. 18:00 Unglingaflokkur kvenna
Kl. 20:00 Unglingaflokkur karla



