Á miðvikudagskvöld léku KR og Stjarnan í unglingaflokki karla í DHL-höllinni. Allt byrjunarlið Stjörnunnar fékk mínútur í síðasta leik liðsins í Dominos-deildinni á móti Haukum. Í lið Stjörnunnar vantaði tvo mjög góða leikmenn. KR var með ágætlega mannað lið en þeir voru samt án tveggja lykilleikmanna.
Fyrsta lotan var nokkuð jöfn, þegar þrjár mínútur voru eftir af henni var Stjarnan yfir 15-13, en þá tók Darri F. Atlason góða rispu og skoraði sex stig á stuttum tíma og þegar lotan endaði var KR yfir 21-15. Brynjar M. Friðriksson lék vel fyrir Stjörnuna í lotunni og setti 8 stig.
Magnús B. Guðmundsson Stjörnumaður skoraði fyrstu körfu annarrar lotu og fylgdi henni síðan eftir með mjög góðum leik. Vilhjálmur K. Jensson svaraði með þristi og kom KR sjö stig yfir. Næstu átta mínútur lék Stjarnan vel og náði að komast fimm stig yfir, 38-33. Stjörnumenn léku illa síðustu mínútu lotunnar og KR náðu að enda hana með tveimur körfum. Stjarnan var því yfir í hálfleik, 38-37.
KR-ingurinn Eyjólfur Halldórsson hafði verið nokkuð rólegur í fyrri hálfleik. Hann sýndi hvers hann er megnugur í þriðju lotunni og skoraði 8 stig snemma í henni. Eftir þessa syrpu fór KR að spila góða vörn og Stjarnan skoraði ekki stig síðustu þrár mínútur lotunnar sem endaði 58-47. Sóknarleikur Stjörnunnar var ekki góður í þessari lotu og náðu þeir aðeins að koma boltanum fjórum sinnum ofan í körfuna.
Garðbæingar byrjuðu fjórðu lotuna vel. Sóknin var góð og þeir tóku 9-0 rispu og minnkuðu muninn í tvö stig. Daði Lár Jónsson lék vel á þessum kafla. Þá vöknuðu KR-ingarnir Illugi Steingrímsson og Vilhjálmur til lífsins komu muninum upp í 8 stig. Þá fór Stjörnumaðurinn Dagur Sturluson að skora og kom muninum í fjögur stig þegar lítið var eftir. Vilhjálmur skoraði síðan mikilvæga körfu og Dagur svaraði með þristi og munurinn var þá þrjú stig. Nær komust Stjörnumenn ekki þar sem KR náði að hitta ágætlega úr vítum sínum á síðustu sekúndum leiksins og leikurinn endaði 74-68. Vilhjálmur og Illugi voru mjög sprækir í þessari lotu og skoruðu 14 af 16 stigum KR í henni.
KR lék ágætlega í þessum leik. Það var ágætis samspil í sókninni og flestir voru að vinna vel í vörninni. Vilhjálmur skoraði 18 stig fyrir KR, Darri 15, Illugi 14, Þorgeir Blöndal 13, Eyjólfur 10 og aðrir minna.
Leikur Stjörnunnar var köflóttur í þessum leik. Boltinn hefði mátt ganga betur hjá þeim og skotval var oft slakt. Brynjar var mjög góður í þessum leik. Hann var með góða tvennu, tók á annan tug frákasta, varði fjögur skot og skoraði 16 stig. Dagur og Daði Lár voru einnig með 16 stig. Magnús Bjarki var með 15 og aðrir minna.
Mynd/ Garðbæingurinn Brynjar Magnús Friðriksson




