ESPN Sports Science tóku fyrir ótrúlega skothæfni Klay Thompson sem skoraði á dögunum 37 stig í einum fjórðungi þar sem hann klikkaði ekki á einu einasta skoti.
Í myndbandinu fær Thompson nýja áskorun: Skjóta 10 þrista í myrkri. 8 þeirra fóru niður en ESPN útskýra fyrir okkur hvernig maðurinn fer að þessu.



