Valur og Haukar áttust við í dag í næst seinustu umferð Dominosdeildar kvenna. Valur þurftu gríðarlega mikið á sigri að halda þar sem þær eiga enn von á fjórða og seinasta sætinu í úrslitakeppninni. Valsstúlkur höfðu á endanum að meira að keppa og var grimdin og hungrið meira hjá þeim og fóru þær því með sanngjarnan 81-68 sigur þar sem Kristrún Sigurjónsdóttir og Taleya Mayberry fóru fyrir sínu liði.
Valsstúlkur hófu leikinn betur og eftir 9-0 kafla leiddu þær 13-6 um miðbik fyrsta leikhluta þar sem stigaskorið dreifðist vel á milli leikmanna. Haukar komu sér inn í leikinn með tveimur þristum frá Þóru Kristínu Jónsdóttur á stuttum tíma, en hún var þrjú af þremur í þriggja í fyrsta leikhluta. Síðan komust Haukar yfir í stöðunni 19-21 en Taleya M smellti niður þrist og sá til þess að Valur leiddi 22-21 að loknum fyrsta leikhluta.
Haukar hófu annan leikhlutann á þrist en Valur svaraði með 8 stiga áhlaupi þar sem Sara Diljá og Kristrún Sigurjónsdóttir setti hvor sitt þrist og komust í 30-24 áður en Haukum tókst að svara. Heimastúlkur voru sterkari í leikhlutanum og þrátt fyrir ágang Hauka þá tókst þeim að komast 8 stigum yfir í stöðunni 38-30 þar sem mest fór fyrir Taleya. Ef hún skoraði ekki þá náði Ragnheiður sóknarfrákastinu og kláraði dæmið. Kristrún kláraði síðan fyrri hálfleikinn fyrir Val með því að skora 4 stig á seinustu þrátíu sekúndunum og sá til þess að þær færu með 11 stiga forystu í hálfleikinn, 48-37.
Haukar mættu grimmar til leiks í seinni hálfleik og ætluðu sér að keyra muninn hratt niður en þrátt fyrir það juku Valur muninn upp í 15 stig, 54-39, þar sem Kristrún og Taleya settu sitt hvor þrjú stigin. Haukar héldu þó áfram að sækja og söxuðu hægt og bítandi á forystu Vals. Þegar staðan var 59-51 áttu Valur sókn sem að tók 1 mínútu og 19 sekúndur en þær náðu hverju sóknarfrákastinu á fætur öðru, eða fjögur í heildina. Þeim tókst þó ekki að skora. Haukar nýttu sér það og enduðu þær þriðja leikhluta á 9-0 áhlaupi, og jafnframt 16-5 síðan Valur leiddu með 15 stigum, og var staðan komin niður í 2 stig, 59-57 fyrir átök lokaleikhlutans.
Haukar virtust ætla að halda áfram af sama meiði og komast yfir en Kristrún var aldeilis ekki á því og sá til þess að kveikja í sínu liði eftir 8 mínútna daufleika. Það varð til þess að þær náðu upp 6 stiga forystu og var staðan 70-64 þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Þá tók við tæpar tvær mínútur af stigaleysi og var það síðan Guðbjörg Sverrisdóttir sem setti þrist fyrir Val og það drap endanlega í Haukum sem skoruðu aðeins 4 stig það sem eftir lifði leiks og Valsstúlkur gengu á lagið og tryggðu sér góðan og mikilvægan 81-68 sigur.




