Nú eru fyrstu leikir beggja einvígja undanúrslita búnir og báðir hafa þeir verið nokkuð afgerandi fyrir heimaliðin. Við fengum þjálfarann Björn Einarson til þess að rýna aðeins í seríur KR gegn Njarðvík & Tindastóls gegn Haukum. Björn hefur á undan förnum árum skapað sér gott orð fyrir bæði yngriflokka þjálfun, sem og hefur hann einnig þjálfað fáeinn meistaraflokkinn (s.s. hjá Hetti og í Vestmannaeyjum), því áhugavert að vita hvað kappinn hefur að segja um þessa fyrstu tvo leiki og framhaldið.
Eftir þessa fyrstu tvo leiki, hvar sérðu kosti hvers liðs liggja í þessari seríu?
KR: Hörku leikmannahópur, eiga Pavel inni og eru með Michael Craion. Þarf nokkuð að segja meira?
Njarðvík:Sterkur heimavöllur og með langbesta bakvörðinn í deildinni þrátt fyrir að hafa spilað undir pari í síðasta leik. Ef Bonneu skilar 35-40 stigum öll kvöld þá getur allt gerst. Þeir eru með Loga Gunnarsson sem er ekki að fara gefast upp svo auðveldlega og býst ég við hörku framlagi frá honum í framhaldinu.
Haukar: Ungir og flottir strákar sem ætla að selja sig dýrt í komandi leikjum!
Tindastóll: Gríðarlega sterkur heimavöllur, flottur leikmannahópur og flottir stuðningsmenn. Ekki skemmir fyrir að þeir eru með besta varamanninn í deildinni, Svavar Birgisson, þvílíkur höfðingi.
Var eitthvað sem kom þér á óvart í þessum leikjum?
KR gegn Njarðvík: Í raun ekki. KR hefur átt marga leiki í vetur þar sem þeir hafa verið að spila illa framan af en taka svo „run“ og klára leikina á nokkrum mín. Gerðu það í 2.leikhluta í game 1 og það var nóg í þetta skiptið.
Tindastóll gegn Haukum: Já hefði viljað sjá íþróttahúsið troðfullt! Það vantaði ekki stemmninguna en miðað við að vera komnir í undanúrslit í fyrsta skipti í mörg ár þá bjóst ég við troðfullu húsi. Skora á Sauðkrækinga að fylla húsið í leik 3 og einnig skora ég á Haukamenn að fjölmenna á krókinn.
Hvað heldur þú að liðin verði að gera til þess að gera seríurnar spennandi?
KR gegn Njarðvík: Njarðvík þarf að vinna sína heimaleiki til að byrja með að sjálfsögðu og væri ég til að sjá þá pressa full court á KR þar sem Pavel er ekki með og sjá hvað það kemur þeim langt. Njarðvík þarf einnig að fá mun meira frá lykilmönnum eins og Loga, Mirko, Maciej t.d. annars vinna KR þetta auðveldlega.
Tindastóll gegn Haukum: „Shaq“ Francis verður að fara setja þessi vítaskot niður en Haukarnir þurfa fá mun meira framlag frá honum en þeir fengu í fyrsta leik. Haukarnir þurfa meiri stöðugleika. Haukur, Emil, Kári og þessir strákar þurfa setja stóru buxurnar á sig og út með bringuna ef þeir ætla fara alla leið í ár. Trúi ekki að þeir séu saddir eftir að hafa unnið Keflavík verðskuldað í fyrstu umferð? Stólarnir eru hinsvegar vel þjálfaðir, eru með Lewis, Flake og Dempsey og sé ég ekki að þessi sería verði spennandi því miður.
Hvernig sérðu framhaldið spilast út?
KR gegn Njarðvík: KR eru einfaldlega of sterkir og ég sé þá ekki tapa þessari seríu. Langar að sjá 5 leiki en held að KR vinni 3-1.
Tindastóll gegn Haukar: Heimavöllurinn vegur þungt hérna og Tindastóll stelur einum í Hafnarfirði. Tindastóll vinnur 3-1




