HomeFréttir"Fer bara eftir tilfinningu"

“Fer bara eftir tilfinningu”

Margt hefur verið spáð í það hvort stjörnuleikmaður KR, leikstjórnandinn knái Pavel Ermolinski, mæti til leiks í viðureign kvöldsins gegn Njarðvík, en kappinn hefur verið mikið frá síðan hann meiddist á læri í bikarúrslitaleik í febrúar síðastliðnum. Karfan náði að hafa upp á honum rétt í þessu til þess að spyrjast fyrir og sagði hann þá þetta fara eftir tilfinningu og að hann vissi það hreinlega ekki sjálfur. Fróðlegt verður að sjá hvort verður af, eða hvort hann klæðist borgaralegum klæðnað einn leikinn enn.

Fréttir
- Auglýsing -